- Advertisement -

Framsókn leggur fram sáttatillögu um veiðigjöldin / sem er mætt af hörku

„Ég skammast mín ákaflega mikið fyrir að hafa kosið þennan flokk síðustu 40 ár, vona að það komi ekki fyrir mig aftur.“

Hálfdán Daðason.

Framsókn hefur kynnt tillögu sína til lausnar á veiðigjaldamálinu. Hörð viðbrögð eru við tillögu XB. Hér fara fá sýnishorn.

Fyrst er það Úlfar Hauksson sem stjórnmálafræðingur, vélstjói og skipstjóri:

„Fyrirsjáanleikinn er nokkuð skýr. Mælt fylgi framsóknar mun minnka með hverri könnuninni eftir því sem bullræðum og málþófi vindur áfram. Almenningur styður frumvarpið óbreytt og gildir einu hvort borið sé niður á höfuðborgarsvæðinu eða utan þess. Þessi sami almenningur hefur fylgst með umræðum og hefur ágætar forsendur til að taka afstöðu til málsins. Sættið ykkur við þessa staðreynd og hættið þessari skemmdarstarfsemi og rugli. Framtíð framsóknar er kolsvört ef haldið verður áfram á sömu braut…“

Hafið fótum troðið lýðræðið

„Ég skammast mín ákaflega mikið fyrir að hafa kosið þennan flokk síðustu 40 ár, vona að það komi ekki fyrir mig aftur. Þið þingmenn flokksins, ásamt hinum minnihluta flokkunum báðum, fótum troðið lýðræðið og látið stjórnast af hagsmunum auðvaldsins í þjóðfélaginu. Framkoma ykkar er afar ógeðfelld. Virðið lýðræðið, að öðrum kosti þurrkist þið út við næstu kosningar,“ skrifaði Hálfdán Daðason.

Lögleysa frá upphafi

Fiskveiðistjórnerkfið er lögleysa frá upphafi. Pólitískt skipuð hæstaréttarhænsn geta ekki bætt úr því, og veiðigjöld geta það ekki heldur. Þið verðið að herða róðurinn, „framsóknar“menn, í þjónustu við skjólstæðinga ykkar, auðlindaþjófana,“ skrifaði Lúðvík Emil Kaaber.

Prinsipplausir þingmenn kaupfélagsstjórans

„Vonandi strokast þessi flokkur sérhagsmunsgæslu út fljótlega. Magnað að sjá þessa prinsipplausu þingmenn kaupfélagsstjórans falla á sverðið fyrir hann, hver á fætur öðrum. Þið eruð til skammar fyrir þjóðina og Alþingi,“ skrifaði Stefán Þórðarson.

Það á að beita 71. greinni

„Það á að leggja frumvarpið fram eins og það er enda ríkisstjórn með mikinn meirihluta og ríflegan meirihluta þjóðarinnar á bakvið sig. Það á að beita 71. gr. leggja frumvarpið fram eins og það er til atkvæðagreiðslu. Vonandi heldur stuðningur við þessa flokka í minnihlutanum áfram að minnka svo þeir hverfi eins og Vg,“ skrifaði Ragnhildur L. Guðmundsdóttir.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: