- Advertisement -

Gjör ólík er staða Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins

Sigurjón Magnús Egilsson:

Guðrún Hafsteinsdóttir verður að ná stjórn á flokknum sjálfum sem og þingflokknum. Það verður erfitt verkefni en nokkuð sem verður að gerast, hennar vegna. Og það sem fyrst.

Meðan Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra og meðan ótvíræðan stuðnings Samfylkingarinnar er aðra sögu að segja af gamla valdaflokknum, Sjálfstæðisflokki. Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin formaður með minnsta mun eftir harða baráttu við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Þar opnaðist sár sem mun seint gróa.

Samfylkingin er orðin stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Það sem meira er að flokkurinn á bæði forsætisráðherrann og borgarstjórann. Félagar Samfylkingarinnar una glaðir við sitt. Staða Samfylkingarinnar er öfundsverð. Þar ríkir einhugur um forystuna og stefnuna.

Annað verður sagt um Sjálfstæðisflokksins. Sem svo löngum áður takast á tvær fylkingar. Sem síðast voru kenndar við fyrrum formann Bjarna Benediktsson og Guðlaug Þór Þórðarson. Ekkert hefur breyst. Guðlaugur Þór studdi Guðrúnu Hafsteinsdóttur og fylking Bjarna kaus Áslaugu Örnu. Tvær jafnar fylkingar í valda flokknum gamla.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Flokkurinn er jú í raun þverklofinn.

Guðrún þarf að verja eigin stöðu alla daga. Ekki hjálpar henni að Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður var eindreginn stuðningsmaður Áslaugar Örnu, ekki Guðrúnar Hafsteinsdóttur.

Áhugamaður um íslensk stjórnmál spurði mig hvers vegna Guðrún Hafsteinsdóttir stoppaði ekki tíðar ferðir þingmanna flokksins í ræðustól. Ég sagðist halda að hún hefði ekki stöðu til þess. Flokkurinn er jú í raun þverklofinn. Það er ekki öfundsverð staða.

Jens Garðar Helgason er varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Með honum og Guðrúnu formanni er margt líkt. Skoðum betur. Guðrún var formaður Samtaka iðnaðarins. Jens Garðar var formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Innan þeirra samtaka eru einnig fyrirtæki í laxeldi.

Guðrún var varaformaður Samtaka atvinnulífsins. Þegar hún hætti í þeirri stjórn var Jens Garðar kjörinn varaformaður í hennar stað.

Guðrún Hafsteinsdóttir, Jens Garðar Helgason, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Hildur Sverrisdóttir.

Guðrún Hafsteinsdóttir verður að ná stjórn á flokknum sjálfum sem og þingflokknum. Það verður erfitt verkefni en nokkuð sem verður að gerast, hennar vegna. Og það sem fyrst.

Á meðan fagnar Samfylkingin 25 ára afmæli sínu og þar eru allir kátir. Kristrún Frostadóttir er ótvíræður foringi síns flokks. Henni hefur tekist vel upp. Hefur tekist að fá flokkinn með sér.

Guðrún Hafsteinsdóttir á margt eftir óunnið. Henni verður að takast að mynda einhug meðal flokksfélaga. Það verður torsótt. Tíminn flýgur áfram og því á Guðrún ekki annan kost en að hefjast handa strax. Annars endar allt í kaldakoli.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: