- Advertisement -

Hildur út og Ólafur inn

Guðrún Hafsteindóttir lætur loks til sín taka innan eigin þingflokks. Hún tilnefnir Ólaf Adólfsson sem næsta þingflokksformann. Hildur Sverrisdóttir sagði af sér sem þingflokksformaður þegar hún vissi að Guðrún ætlað að gera breytingar.

Alls ekki er víst að kyrrð komist á þingflokk Sjálfstæðisflokksins þó Hildur Sverrisdóttir verði ekki áfram þingflokksformaður og Ólafur Adólfsson takið við. Vísir fullyrðir að svo verði.

Ólafur er dyggur stuðningsmaður Guðrúnar og hann var eini þingmaður flokksins, eftir því sem best er vitað, sem mætti til Guðrúnar þegar hún tilkynnti um formannsframboð sitt. Og meira en það. Hann stóð á sviðinu með Guðrúnu.

Eins og vitað er munaði aðeins hársbreidd hvort Guðrún eða Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir yrði formaður Sjálfstæðisflokksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Alls ekki er víst…

Ólafur Adólfsson er nýliði á þingi, rétt eins og varaformaðurinn Jens Garðar Helgason. Ólafur var um tíma oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akranesskaupstaðar. Þar sem hann rekur apótek.

Alls ekki er víst að einhugur verði um þessar breytingar á formennskunni í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Segja má að flokkurinn allur sé klofinn í tvær nokkuð jafnar fylkingar.

Fylgið hefur tálgast af flokknum. Hvort þessar vendingar muni breyta því er óvíst – og kannski ólíklegt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: