- Advertisement -

Glataðir milljarðar?

Í þessum málum báðum eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir bæði sjómenn og þjóðfélagið í heild sinni.

Vilhjálmur Birgisson skrifar:

„Samninganefnd Sjómannasambands Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að láta fara fram óháða rannsókn á söluverði afurða í íslenskum sjávarútvegi.

Miðað við fréttir undanfarinna mánaða má ætla að milliverðlagning á sjávarfangi sé mjög algeng. Ætla má að íslenskt þjóðarfélag verði af gríðarlegum fjármunum ef rétt reynist. Það er því skýlaus krafa samninganefndar Sjómannasambands Íslands að fram fari vönduð, óháð opinber rannsókn á endanlegu söluverði útflutnings sjávarafurða og hvað af raunverulegum verðmætum skilar sér til Íslands.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Einnig áréttar samninganefnd Sjómannasambands Íslands áhyggjur sínar af endurvigtunarleyfum fiskvinnsluhafa á Íslandi. Ítrekað hefur verið sýnt fram á mismun á ísprósentu. Mjög mikill munur hefur verið staðfestur ef Fiskistofa stendur yfir eða ekki.

Í þessum málum báðum eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir bæði sjómenn og þjóðfélagið í heild sinni.“

Sjá nánar hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: