- Advertisement -

Grindvíkingar eru að bugast – skiljanlega

Lára Zulima Ómarsdóttir:

Fjöldi Grindvíkinga starfar í bænum. Nú þegar ekki er að hægt að vinna þar spyrja sum sig hvort þau eigi að leita að annarri vinnu eða bíða og sjá til með það.

Ég hef verið í samskiptum við þónokkra Grindvíkinga sem mörg hver eru við það að bugast. Skiljanlega. Það er erfitt að lifa í slíkri óvissu og vita ekki hvað verður eða hvað gerist næst, geta ekkert skipulagt sitt líf.

Það eru nokkrar spurningar sem ég vil koma á framfæri til yfirvalda fyrir hönd þeirra sem ég hef rætt við. Fjölmiðlar geta líka aðstoðað við að fá svör við þessum spurningum.

Hvenær fá Grindvíkingar að huga að eigum sínum?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við sjáum bara myndir af eyðileggingu í fjölmiðlum.

Í Vestmannaeyjagosinu var fljótlega eftir að gos hófst farið í að bjarga eigum fólks og innbúi. Eins fengu fyrirtæki að bjarga verðmætum. Þá fékk fólk að panta björgun og inn í bæinn fór fólk og sótti það sem óskað var eftir að yrði sótt. Þannig tókst að bjarga miklu. Er ómögulegt að gera slíkt hið sama nú og ef svo er, hvers vegna?

Er allur bærinn ónýtur?

Við sjáum bara myndir af eyðileggingu í fjölmiðlum. Talað er um að bærinn hafi gliðnað um næstum einn og hálfan metra og að hættulegt sé að vera þar vegna þess að sprungur geti opnað fyrirvaralaust. Á þetta við um allan bæinn eða bara hluta hans? Eru einhver heil hús eða heilar götur í Grindavík? Ef svo er, hvar er óhætt að vera og hvar ekki? Má þá fólk sem þar býr fljótlega fara heim og huga að eignum sínum?

Hver er staðan á hafnarsvæðinu?

Sjávarútvegur er stór atvinnugrein í Grindavík og lífæð bæjarins er höfnin. Er hún heil? Verður hægt að stunda sjávarútveg þarna aftur og ef svo er, hvenær má búast við því að það verði?

Hvað ætla stjórnvöld að gera?

Mörg vilja ekki snúa aftur til Grindavíkur jafnvel þótt hús þeirra séu heil. Ætla stjórnvöld að kaupa öll hús í bænum eða bjóða Grindvíkingum sem ekki vilja snúa aftur einhverja aðstoð? Í hvaða formi verður sú aðstoð og hvenær má vænta svara frá stjórnvöldum varðandi það?

Fjöldi Grindvíkinga starfar í bænum.

Hvar á fólk að vinna í framtíðinni?

Fjöldi Grindvíkinga starfar í bænum. Nú þegar ekki er að hægt að vinna þar spyrja sum sig hvort þau eigi að leita að annarri vinnu eða bíða og sjá til með það.

Óvissan er vond.

Þótt ekki sé hægt að svara þessum spurningum núna þá geta stjórnvöld reynt að fullvissa Grindvíkinga um að þeim verði hjálpað, að þetta sé tímabundið ástand til skamms tíma og að stjórnvöld ætli, sama hvað, að aðstoða öll sem þarna hafa búið.

Ég held að við sem samfélag viljum að það verði gert.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: