- Advertisement -

Töldu að formennska Bjarna væri botninn

Nú virðist aðeins spurning um hvenær Viðreisn tekur fram úr gamla móðurskipinu.

-sme

Lengi getur vont víst versnað. Formannstíð Bjarna Benedikttsonar kostaði flokkinn mikið fylgi. Sífellt færri kusu flokkinn. Að lokum átti Bjarni enga aðra leið en hætta sem formaður- að hætta beinni þátttöku í stjórnmálum.

Eftir að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ákvað að sækjast ekki eftir formennsku og að hætta sem varaformaður var úr vöndu að ráða. Guðrún Hafsteinsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir börðust um formannsstólinn. Eins og kunnugt er sigraði Guðrún með allra minnsta mun.

Það sýndi hversu klofinn flokkurinn er til núverandi forystu. Jens Garðar Helgason, nýliði á þingi, var kjörinn varaformaður. Eftir átökin hefur rykið ekki enn sest. Þrátt fyrir að sagt hafi verið að staðan gæti ekki versnað – hefur hínu versnað stig af stigi. Nú virðist aðeins spurning um hvenær Viðreisn tekur fram úr gamla móðurskipinu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…því þarf að finna nýjar leiðir.

Málþófsmetið virðist aðeins draga flokkinn neðar – ef eitthvað er. Þegar þingið kemur saman í haust verður forysta Sjálfstæðisflokksins að mæta undirbúin í átök vetrarins. Verða að sýna að þau hafi lært af þeim fjölmörgu mistökum sem þau hafa gert.

Eflaust eru margir flokksmenn sem eru þess fullvissir að ef Bjarni hefði hangið lengur hefði hann getað komið í veg fyrir hækkun veiðigjalda. Samt ekki með að því tala sig blóðhásan í ræðustól, nótt eftir nótt. Hvaða leið Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að fara verður spennandi að sjá. Það er að þorna undir flokknum og því þarf að finna nýjar leiðir.

Flestum okkar er sama ef svo fer.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: