- Advertisement -

Hundi vísað úr landi

Mannlíf Matvælastofnun sendi hund úr landi vegna falsaðra innflutningsgagna. „Stofnunin vill að gefnu tilefni brýna fyrir innflytjendum gæludýra að ganga úr skugga um að öll tilskilin vottorð séu til staðar og að þau séu gefin út af þar til bærum aðilum,“ segir á heimasíðu stofnunarinnar. Sjá nánar hér.

„Nýlega var hundur fluttur til Íslands sem var með gilt innflutningsleyfi en vottorð vegna mótefnamælingar var hins vegar falsað. Þetta var staðfest af dýralæknayfirvöldum í viðkomandi landi. Innflytjandi hafði lagt undirbúning innflutnings í hendur ræktanda hundsins og svo virðist sem dýralæknir, sem sá leitaði til þar í landi, hafi lagt fram þessa fölsuðu blóðprufuniðurstöðu.

Falsanir vottorða er raunverulegt vandamál sérstaklega frá þriðju ríkjum til EES landa. Því er öllum innflytjendum gæludýra bent á að ganga úr skugga um að allt undirbúningsferlið (bólusetningar, blóðprufur o.fl.)  fari fram samkvæmt settum reglum.

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: