- Advertisement -

Hvað eru Íslendingar margir?

Þóroddur Bjarnason prófessor skrifaði:

Ég vil ekki spilla partíinu sem verður haldið til heiðurs Íslendingi númer 400.000 en…

…. þetta er samt bara fjöldi þeirra sem eru með lögheimili á Íslandi. Það þýðir að hér vantar 49 þúsund íslenska ríkisborgara sem eru með lögheimili erlendis, og að á móti eru hér taldir með erlendir ríkisborgarar sem dvelja hér í skamman tíma og hvorki þau sjálf né önnur myndu líta á sem Íslendinga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þannig að hvað eru Íslendingar margir? Ef skilgreiningin á Íslendingi er að eiga lögheimili hér á landi er sá fjöldi vissulega að detta í 400.000. En það væri hægt að skilgreina það þrengra eða víðar.

Aðrar skilgreiningar gætu til dæmis verið:

  • Íslenskir ríkisborgarar búsettir á Íslandi: 324.000
  • Íslenskir ríkisborgarar óháð búsetu: 373.000
  • Allir íslenskir ríkisborgarar óháð búsetu og allir erlendir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi: 444.000

Vá hvað það yrði samt óspennandi fyrirsögn:

ÍSLENDINGAR ORÐNIR 324.000-444.000, EÐA EITTHVAÐ SVOLEIÐIS!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: