
Hér er upphaf greinar Þorsteins Pálssonar sem birt er á eyjan.is.:
„Miðflokkurinn hefur til þessa haft mest áhrif á málflutning hreyfingar Halldórs Benjamíns Þorbergssonar gegn framhaldi aðildarviðræðna um að breyta 75% aðild Í 100% aðild að Evrópusambandinu.
Nú hefur þessi málefnalegi forystuflokkur andstöðunnar sagt að rétt sé að gefa Trump forseta Bandaríkjanna andmælarétt áður en íslenska þjóðin tekur ákvörðun. Hvorki Halldór Benjamín né formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafa gert athugasemd við þetta sjónarmið.
En hvað felst í því að veita Trump andmælarétt?
Staðfestir efann um skuldbindingar Bandaríkjanna
Rökstuðningurinn með tillögunni skýrir það best. Ástæðan er sögð vera sú að Bandaríkin kunni að líta á framhald viðræðna sem ögrun og því sé ekki víst að þau standi við skuldbindingar sínar gagnvart varnarsamningnum segi þjóðin já.
Með þessu er verið að segja berum orðum að sú breyting hafi orðið að ekki megi lengur treysta á varnarsamninginn. Satt best að segja hefur þetta verið efi margra um tíma. En nú kemur nei hreyfinginn og segir þetta upphátt svo að ekki getur misskilist.
Jafnvel frekari efnahagssamvinna við NATO þjóðir Evrópu er talin þess eðlis að Bandaríkin kunni að líta svo á að þau hafi einhliða rétt til að ákveða að varnarsamningurinn virki ekki lengur.
Nei hreyfingin er ekki beinlínis að slá þessu föstu en telur efann svo mikinn að rétt sé að gefa Trump andmælarétt áður en þjóðin tekur ákvörðun.“
Sjá alla greinina hér.