- Advertisement -

Hvernig líst þeim sem vinna „svart“ á það?

Þetta er snargalið. Það er fáránlegt að sá sem er svikinn verðlauni svikarann.

Ragnar Önundarson skrifar:

Norðmenn miða rétt til viðbótarellilífeyris úr ríkissjóði við SKATTGREIÐSLUR manna. Á því er samt „þak“.  Allir hafa samt sama grunnlífeyri, 90 þús. norskar á ári,  (rétt um 1,4 millj. íslenskar).

Hvernig líst þeim sem vinna „svart“ á það? Kannski gefur enginn slíkur sig fram, en það er athyglisvert að hér hossa menn skatt- og lífeyrissvikurum með því að þeir fá allt það sama og aðrir. Svo rýrum við lífeyri þeirra sem sparað hafa í lífeyrissjóði, en ekki eytt öllu jafnóðum. Þetta er snargalið. Það er fáránlegt að sá sem er svikinn verðlauni svikarann.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: