- Advertisement -

Í hvaða flokki er Áslaug Arna?

„Hann á í dag aðeins 4,4 millj­ón­ir í banka og vant­ar 2,7 millj­ón­ir í út­borg­un á sömu fast­eign.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt ríkisstjórnina vegna slælegrar stjórnar á efnahagsmálum. Vegna verðbólgunnar er margt fólk í stökustu vandræðum. Eignir og peningar brenna upp hvern dag.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra í ríkisstjórninni, skrifar grein sem birt er á leiðarasíðu Moggans. Við lestur greinarinnar vakna spurningar. Til dæmis hvaða flokki ráðherrann tilheyrir, fer hún með þessar hugsanir á viðeigandi fundum og eru skrif hennar ekki áfellisdómur yfir störfum Bjarna Benediktssonar efnahagsmálaráðherra nánast í tíu ár samfellt?

Í grein Áslaugar Örnu segir:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er eng­in ein lausn…

„Verðbólga kem­ur illa við alla. Ef við tök­um dæmi af ungu fólki þá haml­ar hún því að fólk kom­ist inn á hús­næðismarkaðinn. Til að taka ein­falt dæmi má nefna ein­stak­ling sem hafði safnað sér fimm millj­ón­um í upp­haf árs 2021 og vantaði þá eina millj­ón til að eiga fyr­ir út­borg­un á 40 millj­óna króna íbúð. Hann á í dag aðeins 4,4 millj­ón­ir í banka og vant­ar 2,7 millj­ón­ir í út­borg­un á sömu fast­eign. Ein­stak­ling­ur sem aft­ur á móti var kom­inn í eig­in íbúð og átti 5 millj­ón­ir króna í eigið fé, á sama tíma á nú átta millj­ón­ir í eigið fé. Aft­ur á móti hef­ur hús­næðis­verð hækkað þannig að sá ein­stak­ling­ur get­ur átt erfitt með að stækka við sig. Einnig mætti nefna fyr­ir­tæki sem þurfa að fjár­magna sig á háum vöxt­um á sama tíma og þau þurfa að stilla verðlagi og launa­kostnaði í hóf,“ skrifar Áslaug Arna.

„Það er eng­in ein lausn í bar­áttu við verðbólgu. Það má þó draga þann lær­dóm af henni að lífs­gæði þurfa að byggj­ast á stöðug­leika og á traust­um efna­hags­leg­um grunni. Hvor­ugt er skapað með lof­orðaflaumi stjórn­mála­manna um fal­lega framtíðar­sýn og stór­auk­in út­gjöld, svo tekið sé nær­tækt dæmi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: