- Advertisement -

Illviðri í kjördæmaviku Alþingis

Svo illa hitti á að ófærðin og illviðrið, sem verið hefur síðustu daga, skall á í kjördæmaviku Alþingis. Þeim þingmönnum sem gera út á aksturspeninga var því gert sérlega erfitt fyrir. Ófærð og illindi gera ekki mannamun og því komust þingmenn ekki um, ekki frekar en annað fólk. Það mun skekkja tekjustreymi þeirra.

Kannski finna þingmennirnir ekki samhug frá fólki, en fyrir suma þeirra er þetta eflaust mikið áfall. Öll ég styttir upp um síðir svo næst þegar færist gefst munu þeir eflaust hendast um allar koppagrundir. Og það ekki á neinu bílaleigubílum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: