- Advertisement -

LÍ: Verkafólk hefur hækkað mest

Vinnumarkaður „Sé litið á launahækkanir starfsstétta milli 3. ársfjórðungs 2014 og 2015 sést að munurinn á milli þeirra er töluverður. Verkafólk og þjónustu- og afgreiðslufólk hefur hækkað sýnu mest, eða um 11% og sérfræðingar og stjórnendur minnst, um rúm 3%. Þessar tölur eru þannig vísbending um að markmið síðustu kjarasamninga um leiðréttingu launa þeirra lægst launuðu hafi náðst að einhverju leyti.“

Þetta kemur frá Hagsjá Landsbanka Íslands.

„Launa- og kaupmáttarþróun á síðasta ári var launþegum almennt verulega hagstæð. Regluleg laun landsmanna voru að jafnaði 7,9% hærri á öðrum ársfjórðungi 2015 en á sama fjórðungi 2014, sem gaf að meðaltali 5,8% kaupmáttaraukningu á því tímabili. Kaupmáttur launa er nú orðinn hærri en hann hefur verið nokkurn tíma áður. Launahækkunin var 8,3% á almennum vinnumarkaði og 6,7% hjá opinberum starfsmönnum.

Innan atvinnugreina hafa laun hækkað mest í samgöngum og flutningum, eða um 9,4%. Hækkanir í hinum ýmsu greinum eru á bilinu 8-9% nema í fjármálaþjónustu þar sem hækkunin er einungis 4,7% eða nákvæmlega helmingurinn af hækkuninni í samgöngum og flutningum. Kjarasamningur Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu og SA var reyndar ekki gerður fyrr en í lok 3. ársfjórðungs þannig að áhrifa hans gætir ekki.

Þessar tölur benda almennt til þess að markmið kjarasamninganna á almenna markaðnum um meiri hækkun launa til þeirra lægst launuðu hafa náðst. Þar að auki er kaupmáttarþróunin einstaklega hagstæð, 5,8% kaupmáttaraukning á einu ári er mikil hækkun í sögulegu samhengi.“

 

Sjá nánar hér.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: