- Advertisement -

Minni bátar veiða síðri fisk

- og fá mun lægra verð fyrir aflann, segir Lilja Rafney Magnúsdóttir.

 „Stærstu útgerðirnar sækja hráefni sitt, t.d. bolfiskinn, langt út á mið þar sem yfirleitt er miklu stærri og betri þorskur og menn fá miklu hærra verð fyrir hvert kíló,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem er formaður atvinnuveganefndar þingsin., í umræðu um veiðigjöld

„Minni útgerðir,“ sagði hún, „…þurfa að vera nær landi og oftar en ekki fáum við minni þorsk þess vegna, kannski lélegra hráefni, og fáum lægra verð á fiskmörkuðum. Það eru til tölur um að meðalverð á t.d. þorski endurspeglar ekki einhvern stuðul sem notaður er í reiknireglu varðandi afkomu. Þetta getur munað mjög miklu, kannski 160 kr. á kíló af þorski hjá litlum útgerðum þegar kílóverðið getur farið langt yfir 200 kr. hjá þeim stóru með gott hráefni af úthafsmiðum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: