Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifaði:
„Staðan á
Íslandi í dag er sú að útgerðirnar sem hagnast á nýtingu auðlindarinnar
niðurgreiða fría heimsendingu á dagblaði til landsmanna til að sannfæra þá um
að ekki eigi að fara í viðræður við Evrópusambandið, vegna þess að þá gætu
landsmenn misst forræði yfir sömu auðlind og fjármagnar heimsendinguna um að
viðræðurnar svipti það forræði yfir auðlindunum.
Það er alveg óháð því hvað manni finnst um
aðildarviðræður. Nú í sumar var 600 milljónum króna bætt við í hlutafé í félag
sem hefur verið niðurgreitt í taprekstri frá efnahagshruninu.