- Advertisement -

Setjum markið hærra og breytum rétt

Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar í Mogga dagsins. Hún skrifar um vopnasölu Þjóðverja til Ísrael og segir: „Áhugaleysi já-sinna á yfirgengilegri hollustu Evrópusambandsins við Ísrael, þrátt fyrir að ríkið fremji glæpi gegn mannkyni og framkvæmi þjóðernishreinsanir á almenningi á Gaza, ásamt landráni á Vesturbakkanum, hlýtur að vekja athygli.“

Lokahluti greinar Sólveigar Önnur er svona: „Margir já-sinnar halda því fram að aðild Íslands að ESB myndi styrkja siðferðilega stöðu okkar í heiminum. En þegar við skoðum utanríkismálastefnu sambandsins sjáum við að svo er ekki. Með því að standa utan sambandsins höfum við Íslendingar raunverulega möguleika á því að taka sjálfstæðar ákvarðanir um alþjóðaviðskipti og utanríkismál. Innan ESB yrðum við háð ríkjum eins og Þýskalandi sem tala fjálglega um mannréttindi en nota hiklaust völdin til að verja Ísrael frekar en konur og börn á Gaza. Við skulum ekki taka þátt í að leggja þungar byrðar á herðar fólksins í Palestínu með því að ganga til liðs við ESB – við eigum að setja markið hærra og breyta rétt.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: