- Advertisement -

Segir Lilju formann Framsóknar vilja að Ísland gangi aldrei í Evrópusambandið

Svarthöfði dv.is er fjallar meðal annars um Framsókn, Lilju formann og ESB. Hér fer upphaf greinarinnar og hér er greinin öll:

„Framsóknarflokkurinn berst með kjafti og klóm gegn því að íslenska þjóðin fái að taka afstöðu til samnings um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Einu sinni barðist Framsókn fyrir aðild Íslands að ESB en svo breyttist það. Nú er formaður í Framsókn sem hefur það helsta, jafnvel eina, baráttumál að Ísland megi aldrei fara í ESB.

Já, Framsókn er umhugað að unga fólkið og börnin okkar – barnabörnin – fái að berjast við sömu vexti og verðtryggingu sem við og foreldrar okkar höfum þurft að berjast við. Ekkert herðir krakkann eins og að takast á við mótlæti! Framsókn hefur löngum verið tjóðruð í fortíðinni og nýr formaður heldur í hefðina.

Svarthöfði fylgist af áhuga með umræðum um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Hann fylgist líka með skoðanakönnunum um það hvernig Íslendingar ætla að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: