- Advertisement -

NAKINN SANNLEIKUR

Birgir Dýrfjörð skrifaði:

Ég birti hér bút úr fræðandi grein, sem Sig. Sigurðsson verkfræðingur skrifaði á Miðjuna.

Ég hvet alla að lesa þá grein. Í henni segir:

„Kosningarnar þann 29. ágúst snúast ekki um það hvort okkur líki betur eða verr við skriffinnsku í útlöndum. Þær snúast um hvort við ætlum að brjóta upp þá innlendu fákeppni og það vaxta- og verðbólgukerfi sem heldur heimilunum í landinu í gíslingu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Við þurfum samfélag fyrir fólkið, en ekki útfararstofu fyrir framtíðina.“

Ef við höldum áfram að hlusta á innantómar lofræður um víkingaarfleifð og leyfum stjórnmálamönnum að AFSKRIFA þjóðaratkvæðagreiðslur sem „gerviskoðanakannanir“, mun fólksflóttinn halda áfram. Samfélagið mun eldast, menntunin mun leita út fyrir landsteinana og eftir situr einangruð eyja þar sem örfáir auðmenn eiga auðlindirnar og húsnæðið, en mannauðurinn er farinn. Það er kominn tími til að leggja spilin á borðið: Við þurfum samfélag fyrir fólkið, en ekki útfararstofu fyrir framtíðina.“

Ég hvet alla sem vilja heiðarlega umræðu um framtíð lands og þjóðar að lesa og dreifa grein Sigurðar.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: