- Advertisement -

Oddný: Eygló og Vigdís eiga að skammast sín

Oddný G. HarðardóttirAlþingi Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkinarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, gerði orð Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar og Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðisráðherra, að umtalsefni á Alþingi í dag.

Oddný sagði: „Ekki er langt síðan hæstvirtur húsnæðis- og félagsmálaráðherra lét færa starfsmönnum fjármálaráðuneytisins orkustangir með kveðju. Hæstv. húsnæðis- og félagsmálaráðherra vildi láta menn halda að það væri leti starfsmanna fjármálaráðuneytisins um að kenna að húsnæðisfrumvörpin væru ekki komin fram, en það er fjarri sanni. Embættismenn ráðuneytisins gátu hins vegar ekki varið sig fyrir þessari lágkúrulegu árás og það vissi hæstv. ráðherra mætavel. Hæstv. húsnæðis- og félagsmálaráðherra þorði ekki að tala við hæstv. fjármálaráðherra sjálfan og réðst því að varnarlausum starfsmönnum ráðuneytisins.“

Sagði starfsmennina hafa framið glæp

Oddný var ekki hætt: „Annar framsóknarmaður, hásttvirtur þingmaður Vigdís Hauksdóttir, sagði í þættinum Í bítið á Bylgjunni í gær að hún teldi að embættismenn fjármálaráðuneytisins hefðu framið glæp í formi skjalafals og það hvernig meðferð skjala hér á Alþingi sem varða endurreisn bankakerfisins eftir hrun og aðgengi háttvirtra þingmanna að þeim sé runnið undan rifjum embættismannanna. Hæstvirtur forseti ætti að geta leiðrétt háttvirtan þingmann hratt og vel enda er það þingið sem ræður meðferð skjalanna.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þorir ekki í ráðherrana

EH VHMeira úr ræðu Oddnýjar: „Hæstvirtur þingmaður Vigdís Hauksdóttir þorir ekki að ráðast beint að fjármálaráðherrum síðasta kjörtímabils en sakar embættismenn um óheiðarleika með dylgjum í fjölmiðlum og vill notfæra sér þá tortryggni sem enn ríkir í samfélaginu til að þyrla upp ryki. Mér finnst framkoma þeirra beggja gagnvart starfsmönnum fjármálaráðuneytisins óásættanleg, auk þess sem hún er lítilmannleg. Það eru ráðherrar sem fara með ábyrgð og þangað á að beina spjótum en ekki að embættismönnum sem geta ekki varið sig fyrir slíkum rógi og árásum. Mér finnst að hæstvritur ráðherra og háttvirtur þingmaður ættu að skammast sín og í öðrum lýðræðislöndum segja menn af sér fyrir minni sakir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: