- Advertisement -

Opið bréf til formanns Samfylkingarinnar

Og nú tel ég Logi, fulla þörf að upplýsa flokksfólk um það mál.

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Sæll félagi Logi Már Einarsson.

 Ástæða þess að ég sendi þetta bréf fyrir framan alþjóð er sú, að ég heyrði skýringu þína í fjölmiðlum þegar út spurðist, að Ágústi Ólafi alþingismanni Samfylkingarinnar hafði verið sparkað niður framboðslista flokksins.

Vegna góðra kynna við þig Logi…

Þú sagðir að þetta væri lýðræðislega fengin niðurstaða í 14 manna uppstillingarnefnd.

Sú skýring þín er alröng.  Niðurstaðan var studd með fjórum atkvæðum í stjórn fulltrúaráðsins. (Fjórmenninga klíku að hætti Marxista.)  Þar er okkar lýðræði í dag.

Vegna góðra kynna við þig Logi er ég sannfærður um að þú hafir ekki fengið aðra vitneskju en þá, að um hafi verið að ræða hóp 14 fulltrúa.

 Skoðanakönnun Gallup.

Ég sat sjálfur í 14 manna nefndinni og studdi þar Ágúst  Ólaf  sitjandi þingmann okkar í fyrsta sæti.  Áður en formleg störf uppstillingarnefndar hófust, skýrði ég frá nýrri skoðanakönnun, sem ég hafði vitneskju um.

Þegar ég sagði af mér nefndarstörfum og gekk af fundi nefndarinnar, þá tók ég skýrt fram að fyrri vitneskja mín  um skoðanakönnun, sem ég bar inn í nefndina í upphafi, félli ekki undir þagnarheit mitt sem nefndarmanns. Ég myndi því skýra frá henni teldi ég þess þörf. Og nú tel ég Logi, fulla þörf að upplýsa flokksfólk um það mál.

Þessi skoðanakönnun, sem full ástæða er til að taka mark á sýndi, að í kjördæmi Ágústs mældist Samfylkingin stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. 

Könnunin sýndi líka að í kjördæmi Ágústs hafði Samfylkingin hæst hlutfall  fylgis hjá ungu fólki.   

Ég veit Logi, að þér ætti að vera fært að sjá þessa könnun, sem Gallup framkvæmdi.

Má ekkert segja hér gott um þennan mann?

„má ekkert  gott segja hér um þennan mann?“ 

Verkefni uppstillingarnefndar var að raða saman sigurstranglegum lista.  Ég benti á, að samkvæmt þessari skoðanakönnun hefðu kjósendur í kjördæmi Ágústar þegar valið, hvað þeim þætti best.

Það fellur síðan undir þagnarskyldu mína að þegja yfir sérkennilegum viðbrögðum sumra nefndarmanna við þeim upplýsingum, sem  þessi könnun birti okkur. 

Þau viðbrögð  komu mér svo mikið á óvart, að ég missti út úr mér og kallaði yfir salinn; „má ekkert  gott segja hér um þennan mann?“   

Atkvæðagreiðslur

Það var smíðað í reglur nefndarinnar, að ef ekki næðist sátt um skipan listanna þá skildi endanleg ákvörðun fara til kjörinna fulltrúa í stjórn fulltrúaráðsins. 

Þegar uppstillinganefndin hafði rætt mál Ágústs á mörgum fundum óskaði ég eftir  atkvæðagreiðslu til, að kanna stuðning við Ágúst í annað sæti.

Svarið var trúboðalegt:  Við eigum ekki að ná niðurstöðu með því að bera hvert annað ofurliði með atkvæðum.  Þetta er dæmi um Stalíníska vörn móti lýðræði.

Það skaut því nokkuð skökku við þegar formaður nefndarinnar tók mál Ágústs Ólafs eitt og sér til atkvæða og ákvörðunar í stjórn fulltrúaráðsins þar, sem hann er formaður.

Atkvæða greiðslan var um það, hvort taka ætti tilboði Ágústs um að vera í 2. sæti.

Nú er spurt Hvernig var þessi  atkvæðagreiðsla í stjórn Fulltrúaráðsins.

Var hún í heyranda hljóði eins og aðrar á fundum uppstillingarnefndarinnar? 

Eða var atkvæðum safnað með símtölum formanns við einn og einn í stjórninni?

Ákvörðun stjórnarinnar var kynnt þannig, að Þrír studdu tilboð Ágústs að vera í öðru sæti í Rvk.suður.  Fjórir höfnuðu tilboði  þingmanns flokksins um, að taka 2. sæti.

 Skrípaleikur

Ágústi verður sparkað út af þingi með skóför (fjórmenningaklíkunnar) á rassinum.

Þannig björguðu Sigmundur Davíð og Logi Már Samfylkingunni frá örlögum risaeðlanna.

Orðstír klíkunnar mun lengi lifa.  Ekki síst vegna þess að þessi skrípaleikur mun draga mjög úr fylgi flokksins í komandi kosningum. Og valda lamandi illdeilum. Þetta veit ég eftir urmul af símtölum frá fólki sem fordæmir aðför stjórnar fulltrúaráðsins að Ágústi Ólafi.

  Launsátrið.   Sporin hræða

Það var ekkert við það að athuga árið 2015 að bjóða fram gegn Árna Páli, formanni.

En launsátrið, sem blasti við þjóðinni,   þegar tilkynnt var um framboð gegn honum í kvöldfréttum daginn fyrir setningu landsfundar, og vitneskjan um hvernig að því framboði var unnið, ofbauð réttlætiskennd flokksfólks og almennings.

Flokkurinn missti andlitið og uppskar almenna skömm og andúð.   Fólk vildi ekkert hafa með þannig flokk að gera.

Flokkurinn hrundi í öllum kjördæmum og náði hvergi þingmanni nema í Norð-austur kjördæmi. Þar átti Framsóknarflokkurinn í vanda og nærri níu hundruð kjósendur strikuðu Sigmund Davíð út.  Framsóknarfólk á Akureyri  lét sér ekki nægja að útstrika Sigmund D.

Það kaus í staðinn góðan samstarfsmann sinn í Bæjarstjórn Akureyrar  Loga Má Einarsson.

Þannig björguðu Sigmundur Davíð og Logi Már Samfylkingunni frá örlögum risaeðlanna.

Hvað skal gera? 

Ég veit vel Logi og ég met það við þig, að þú villt ekki blanda þér í skipan framboða í einstöku kjördæmum. 

En í Reykjavík þarf nú yfirvegað fólk, að bjarga flokknum frá að missa andlitið með fyrirsjáanlegu fylgistapi, og langvarandi illdeilum, sem stafa alls ekki af málefna ágreiningi.

Heldur af pólitískri skákblindu. Þannig sjáum við ekki hvernig við misbjóðum sjálfum okkur og réttlætiskennd flokksfélaga og almennings.

Nú þarf Logi gott fólk, að setjast niður með stjórn fulltrúaráðsins í þeim tilgangi, að hún endurskoði þá samþykkt sína, að hafna því tilboði Ágústs að hann skipi annað sæti á lista Samfylkingarinnar í  Reykjavíkurkjördæmi.-suður.

Metnaður einstaklinga verður þar að víkja fyrir hagsmunum fjöldans.

Birgir Dýrfjörð

 (höf. er í flokksstjórn Samfylkingarinnar.)


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: