Knattspyrna: Víðir Sigurðsson tók saman og birti á Facebook:
Væri íslenska karlalandsliðið í fótbolta enn með í umspilinu fyrir HM ef Orri Steinn Óskarsson hefði ekki misst af öllum sex leikjunum í undankeppninni í haust?
Þeirri spurningu verður að sjálfsögðu aldrei svarað en Orri þurfti bara tvö færi til að skora tvö mörk á fyrstu 20 mínútunum þegar hann sneri aftur í landsliðið í vináttulandsleiknum gegn HM-gestgjöfum Kanada í Toronto í dag. Leikur liðanna endaði 2-2.
Orri er enn bara 21 árs gamall og yngsti maður landsliðsins þó hann beri fyrirliðabandið. Hann hefur nú skorað 9 mörk í fyrstu 17 landsleikjum sínum og aðeins Ríkharður Jónsson, goðsögnin frá Akranesi, og Kolbeinn Sigþórsson hafa farið betur af stað með íslenska karlalandsliðinu.
Rikki skoraði níu mörk í fyrstu 13 landsleikjum sínum á árunum 1947 til 1956, þar af fjögur í sigurleiknum fræga gegn Svíum, 4-3, og Kolbeinn þurfti aðeins 15 leiki til að skora sín fyrstu níu mörk fyrir landsliðið á árunum 2010 til 2013.
Þessir hafa verið fljótastir að skora níu mörk fyrir A-landslið karla:
- Ríkharður Jónsson þurfti 13 leiki
- Kolbeinn Sigþórsson þurfti 15 leiki
- Orri Steinn Óskarsson þurfti 17 leiki
- Þórður Þórðarson þurfti 18 leiki
- Eiður Smári Guðjohnsen þurfti 25 leiki
- Gylfi Þór Sigurðsson þurfti 27 leiki
- Tryggvi Guðmundsson þurfti 31 leik
- Þórður Guðjónsson þurfti 33 leiki
- Albert Guðmundsson þurfti 36 leiki
- Alfreð Finnbogason þurfti 38 leiki
- Pétur Pétursson þurfti 38 leiki
- Ríkharður Daðason þurfti 39 leiki
- Teitur Þórðarson þurfti 40 leiki