- Advertisement -

Pabbi Áslaugar Örnu hringdi í Bjarna og reddaði henni ráðherrastól

Bjarni Benediktsson var búinn að tilkynna Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttir að hún yrði ekki næsti dómsmálaráðherra eftir að Sigríður Á. Andersen sagði af sér 2019. Eitt símtal breytti þeirri ákvörðun.

DV greinir frá því að þetta komi fram í hlaðvarpsþættinum Chat after Dark þar sem Áslaug Arna, sem nú gegnir embætti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, er nýjasti gestur.

„Ég hélt þú myndir þora“

Í viðtalinu greinir Áslaug Arna frá því að hún hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum enda hafi hún ákveðið að sækjast stíft eftir embættinu þrátt fyrir að vera aðeins 29 ára að aldri og reynsluminnsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Flokkurinn:

Bersýnilega hefur Sigurbjörn komið skilaboðum til Bjarna með einhverjum ráðum um að hann skyldi endurskoða hug sinn vegna þess að skömmu síðar hringdi Bjarni óvænt í Áslaugu Örnu. Hún segist hafa talið að hann ætlaði að láta hana vita rétt fyrir fundinn hver hefði orðið fyrir valinu svo að vonbrigði hennar yrðu minni.

Símtalið átti sér stað kvöldið áður en Áslaug Arna átti að fara í vinnuferð til Finnlands með utanríkismálanefnd þingsins en hún var formaður nefndarinnar. Hún vildi hins vegar heyra í Bjarna fyrir ferðina og kanna hvort að hún ætti að aflýsa förinni enda vissi hún að til stæði að útnefna nýjan dómsmálaráðherra meðan á ferðinni stæði og hún þyrfti helst að vera viðstödd fengi hún embættið.

Sem fyrr segir tilkynnti Bjarni henni í símtalinu að hún yrði ekki fyrir valinu að þessu sinni, án þess að nefna það hver fengi stólinn. Eftir símtalið melti Áslaug Arna tíðindin nokkra stund áður en hún sendi sms-skeyti á Bjarna með eftirfarandi setningu: „Ég hélt þú myndir þora“.

Frétti af ráðherrastólnum inni á klósetti á rússneskum veitingastað

Áslaug Arna fór því í ferðinni ásamt öðrum þingmönnum en sagði engum frá tíðindum fyrst í stað. Hún hafi loks sagt föður sínum frá því í símtali og síðan haldið á rússneskan veitingastað í Finnlandi ásamt öðrum þingmönnum. Hún hafi pantað sér rauðvínsglas og mat og ætlað að fylgjast með fundi þingflokks Sjálfstæðisflokksins á Teams þar sem tilkynnt yrði „hvaða kall“ yrði fyrir valinu, eins og Áslaug Arna orðaði það.

Faðir Áslaugar Örnu er sem kunnugt er Sigurbjörn Magnússon lögmaður, sem jafnframt er stjórnarformaður Árvakurs í krafti eignarhluta Guðbjargar Matthíasdóttur eiganda Ísfélagsins í Vestmannaeyjum.

Bersýnilega hefur Sigurbjörn komið skilaboðum til Bjarna með einhverjum ráðum um að hann skyldi endurskoða hug sinn vegna þess að skömmu síðar hringdi Bjarni óvænt í Áslaugu Örnu. Hún segist hafa talið að hann ætlaði að láta hana vita rétt fyrir fundinn hver hefði orðið fyrir valinu svo að vonbrigði hennar yrðu minni. Hún hafi því brugðið sér afsíðis inn á klósett rússneska veitingastaðarins og þar hafi hún fengið að vita tilgang símtalsins. Bjarni var að tilkynna henni að hún yrði næsti dómsmálaráðherra.

Í viðtalinu talar Áslaug Arna hlýlega um formanninn sinn og segir að hann eigi það til að draga ákvarðanir fram á síðustu stundu en sé þá búinn að hugsa þær fram og til baka.

„Bjarni hefur sýnt það að hann treysti ungu fólki í stjórnunarstöður,“ segir Áslaug Arna sem segir Sjálfstæðisflokkinn vera í fararbroddi hvað það varðar.

Tekið af vefnum hringbraut.is.

Ekki er að efast um að Áslaug Arna fari hér með rétt mál. Halda mætti að Sigurbjörn Markússon, faðir Áslaugar Örnu og stjórnarformaður Moggans, eigi hönk upp í bakið á Bjarna. Merkilegt að einn maður geti hringt í formann Sjálfstæðisflokki og redda dóttur sinni ráðherraembætti.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: