- Advertisement -

Ríkistjórnin hefur misst alla stjórn á verðbólgunni – kennir öðrum um

„Leiðin til að takast á við verðbólguna er að við komum öll að því borði og hættum að kenna hvert öðru um.“

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Logi Einarsson og Sigurður Ingi tókust á um stjórn efnahagsmála á Alþingi. Ekki síst um húsnæðsimálin.

„Ríkisstjórnin hefur misst alla stjórn. Ríkisstjórnin hefur misst stjórn á verðbólgunni og á vöxtunum og var fyrir löngu búin að missa stjórn á stóru velferðarmálunum sem ráða mestu um kjör og efnahag venjulegs fólks á Íslandi. Það er þaðan sem ólgan sem við sjáum nú á vinnumarkaði sprettur, verkföll og bráðum verkbann með alvarlegum afleiðingum fyrir þúsundir heimila og samfélagið allt,“ sagði Logi Einarsson, þingflokks Samfylkingarinnar.“

„Ríkisstjórnin getur ekki bara bent á alla aðra og skorast undan eigin ábyrgð, bent á Seðlabankann, bent á vinnumarkaðinn, bent á fólkið í landinu. Nei, ríkisstjórnin ber sjálf ábyrgð á að stjórna þessu landi og reka samfélag okkar svo vel sé. Þess vegna vil ég nú spyrja hæstvirtan innviðaráðherra um húsnæðismál. Það vill svo til að Framsóknarflokkurinn hefur farið með stjórn húsnæðismála í áratug og staðan er ekki beinlínis glæsileg. En það hefur aldeilis ekki skort á loforðaflauminn frá hæstvirtum innviðaráðherra og félögum hans í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur um bót og betrun í húsnæðismálum,“ sagði Logi.

Okkur tókst að verja mest lægstu tekjuhópana — langmest.

„Það stendur að sjálfsögðu ekki á ríkisstjórninni að axla sína ábyrgð og m.a. getum við bara bent á það að í gegnum Covid-faraldurinn, það er nú að koma út úttekt á því, þá kemur í ljós að okkur tókst það sem er mjög mikilvægt, að verja mest lægstu tekjuhópana — langmest. Við fórum á síðastliðnu ári í það, vegna þess að verðbólgan var vaxandi, að hækka húsnæðisbætur um tæp 24%; fyrst um 10% í júní og svo aftur um 13,8%, ef ég man rétt, um áramótin og breikkuðum þann hóp sem nýtur þeirra bóta. Við fórum í að hækka vaxtabætur og viðmiðin þar þannig að þau nýtast bæði fleirum og meir þeim sem þann stuðning þurfa að fá,“ sagði innviðaráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson.

„Nú síðast í þessari viku hafa tveir hæstvirtir ráðherrar ríkisstjórnarinnar gefið í skyn að leigubremsa komi til greina,“ sagði Logi.

„Við í Samfylkingunni höfum kallað eftir tímabundinni leigubremsu frá því í haust að danskri fyrirmynd. Við höfum kallað eftir þessu mánuðum saman og verið algjörlega samstiga Alþýðusambandi Íslands. Leigubremsa til eins árs væri mjög mikilvægt innlegg í kjaramál á þessum tímapunkti og ég spyr því hæstv. innviðaráðherra hvort hann muni hafa forgöngu um slíka lagasetningu um tímabundna leigubremsu, t.d. að danskri fyrirmynd, eins og við í Samfylkingunni höfum margítrekað lagt til hér,“ sagði Logi.

„Væntingarnar á Íslandi um verðbólgu inn í framtíðina eru allt of háar. Eina leiðin til að snúa því við er að við tökum öll höndum saman, aðilar vinnumarkaðarins, ríkisstjórnin að sjálfsögðu, sem getur haft forgöngu um slíkt, Seðlabankinn og almenningur allur, ekki síst fyrirtækin í landinu sem ráða oft verði á vöru og þjónustu. Við erum síðan með hópa að störfum, m.a. um réttindi leigjenda þar sem m.a. er til skoðunar hvernig við getum tryggt enn frekar þeirra réttindi með einhvers konar útfærslu á því sem háttvirtur þingmaður kallaði leigbremsu eða slíkt. Það er þar til skoðunar. Ég vænti þess að við fáum áfanganiðurstöður sem við getum komið með hingað inn í þing ef með þarf eins fljótt og þörf er. En við erum á vaktinni,“ sagði Sigurður Ingi ráðherra.

Þetta er bara ekki boðlegt, hæstvirtur ráðherra.

Logi: „Það er bara ekki nóg að vera á vaktinni, það þarf að gera eitthvað á vaktinni. Það er náttúrlega óboðlegt þegar blasir við alvarlegt ástand vegna verkfalla og hryllilegt ástand fyrir launafólk vegna verkbanna að vera að vísa í einhverja nefnd. Í staðinn fyrir að tala um hvað eigi að gera núna á næstu dögum og næstu klukkutímum er farið í einhverja sagnfræði. Ég bið hæstvirtan innviðaráðherra afsökunar á því þegar ég sagði að það væri ekki nóg að skella skuldinni á Seðlabankann, almenning í landinu og launþegahreyfinguna en gleymdi því sem hann kom svo inn á áðan, að hann kenndi stríðinu í Úkraínu um. Þetta er bara ekki boðlegt, hæstvirtur ráðherra. Það blasir við neyðarástand eftir nokkra daga. Og ég vil fá að heyra: Ætlar ríkisstjórnin að grípa til aðgerða sem geta losað um þann alvarlega hnút sem er á vinnumarkaðnum eða ætlar hún áfram að koma hingað upp og vísa í einhverjar nefndir sem hafa enga tímafresti?“

Sigurður Ingi: „Þegar ég vísaði til þess að við værum á vaktinni þá var ég að vísa til þess. Það voru ekki söguskýringar, ég var bara að rifja það upp fyrir hv. þingmanni að við höfum akkúrat verið að taka tillit til þeirra hópa sem hafa það erfiðast. Við gerðum það á síðasta ári og við ætlum að gera það áfram og núna í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins. Það var hluti af samkomulagi sem ríkisstjórnin gerði við gerð kjarasamninga fyrr í vetur að koma á laggirnar þeim hópum með þeim aðilum sem leggja áherslu á að við göngum hratt og örugglega til verks. Það er verið að vinna þannig. Ég held að háttvirtur þingmaður hafi fullan skilning á því, að hann vilji að það sé ekki gert án þess að hlutirnir séu skoðaðir. Það er m.a. verið að skoða fyrirmyndir frá öðrum Evrópuþjóðum þar sem hlutirnir hafa gengið að mörgu leyti betur á þessu sviði. Við ætlum að læra af þeim og ég er sannfærður um að við munum geta það. Leiðin til að takast á við verðbólguna er að við komum öll að því borði og hættum að kenna hvert öðru um.“

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: