- Advertisement -

Segir vegaskatta vera framtíðina

- Guðjón Brjánsson Samfylkingu vill skoða vegagjöld en segir samgönguáætlun ekki standast væntingar.

„…veruleikinn blasir við okkur, fjölgun bifreiða, stöðugt vaxandi umferð og auknar kröfur til umferðarmannvirkja kalla á síaukin opinber útgjöld. Það er því ærin ástæða til að taka gjaldtöku af umferð til skoðunar í heild sinni, hagnýta sér nútímatækni með framtíðina að leiðarljósi. Ekki að skella á gjaldtöku á ábatasömum blettum með öruggan gróða, jafnvel einstaklinga og einkafyrirtækja í huga,“ sagði Guðjón Brjánsson Samfylkingu í þingræðu.

Hann er ekki hrifinn af samgönguáætlun Sigurðar Inga.

„Stjórnvöld hafa alið á miklum væntingum um stórátak í þessum málaflokki, eins og reyndar í mörgum öðrum sem lítið verður síðan úr, annað en ofurlítið fjaðrafok. Þingsályktunartillaga sú sem við lítum nú stenst ekki væntingar. Húrrahrópin heyrast enda ekki. Fagnaðarlætin ætla einhvern veginn ekkert að hefjast.“

Þörfin er mikil og víða, að mati Guðjóns.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Guðjón Brjánsson: „Þingsályktunartillaga sú sem við lítum nú stenst ekki væntingar. Húrrahrópin heyrast enda ekki. Fagnaðarlætin ætla einhvern veginn ekkert að hefjast.“

„Það er sama hvert litið er, til landsbyggðar eða þéttbýlis, alls staðar er knýjandi nauðsyn á uppbyggingu vega, flugvalla og hafna. Orðræða stjórnvalda verður stöðugt einfaldari og á sömu lund. Mantran er orðin þeim töm á tungu. Ef þið viljið betri vegi verðið þið að borga meira, þið verðið að seilast aðeins dýpra ofan í vasana ykkar.“

Aftur að vegagjöldum.

„Það stendur auðvitað í almenningi að bæta við álögur sínar sem eru ærnar fyrir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: