- Advertisement -

Steingeldir stjórnmálamenn

Katrín Jakobsdóttir hefur siglt allri sinni pólitík í var.

Ráðherra, og jafnvel ráðherrar, stökkva nú hæð sín í loft upp af fögnuði. En hverju er fagnað af slíkum krafti? Jú, hugmynd um að setja nýja skatta á ferðalanga. Ekki ný hugmynd. Henni er samt fagnað.

Til að fá mannfólkið til að huga betur að öðrum og skárri lífsháttum eiga stjórnmálamenn engin önnur ráð en að skattleggja okkur meir en gert. Þessu fagnar meginhluti þingheims. Ekki sístur er fögnuðurinn óbeislaður meðal ráðherra.

Þó með einni undantekingu, eða hvað?: „Lög­um og reglu­gerðum er ætlað að leysa vanda­mál nú­tím­ans og ekki síður mögu­leg vanda­mál framtíðar­inn­ar. Með ein­um eða öðrum hætti ramm­ar ríkið reglu­lega inn það hvernig við lif­um lífi okk­ar, stund­um í þeim til­gangi að verja okk­ur fyr­ir okk­ur sjálf­um,“ skrifar einn ráðherranna, Áslsaug Arna Sigurbjörnsdóttir, í Moggann í dag.

Finnur ríkisstjórn enga aðra leið til að ná sínu fram en setja á refsigjöld?

Katrín Jakobsdóttir hefur siglt allri sinni pólitík í var. Talar bara um áætlanir í umhverfismálum. Kemst upp með að vera einsmáls stjórnmálamaður. Hún mun eflaust fagna „nýrri“ hugmynd um aukna skatta.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: