- Advertisement -

Stjórnast þingmenn af hégóma?

„Hvers vegna eru alþingismenn í Þingvallanefnd? Hvaða rugl er þetta?“

Þannig skrifaði ég hér á vefinn í byrjun október 2018. Ég átti ekki von á svari.  Og ekki heldur á skýringu á þessu kerfi sem viðgengst. Nú ber svo skemmtilega við að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata gerir sitt til útskýringa. Hann sýnir að þetta fyrirkomulag er hreint út sagt galið. Og varla til annars en að fullnægja fáránlegum metnaði þingmanna. Þingmanna sem neita að skilja eigin stöðu. Þeir rugla saman hlutverki sínu sem þingmenn og þar með aðhald að framkvæmdavaldinu með því að „snobbast“ í Þingvallanefnd, sem reynist mörgum of stórt og flókið verkefni. Þeir hafa meira að segja brotið lög með ákvörðunum sínum. Vangetan er svo mikil.

Hvers vegna eru þingmenn í Þingvallanefnd? Eru það nauðsynlegt? Eða ræður hégómi því að þeir eru í nefndinni og er það eðlilegt?

Björn Leví skrifar grein í Mogga dagsins:

Þú gætir haft áhuga á þessum
Björn Levi Gunnarsson:
Þessi litla nefnd er samt bara dæmi um stærra vanda­mál sem Alþingi glím­ir við í eft­ir­lits­hlut­verki sínu því það er hefð að meiri­hluti þings­ins slái sam­an í að eigna sér fram­kvæmda­valdið.

„Í maí í fyrra spurði ég formann Þing­valla­nefnd­ar, þegar mælt var fyr­ir breyt­ingu á lög­um um þjóðgarðinn á Þing­völl­um, hvort það væri ekki rétt­ara að þau stjórn­sýslu­legu verk­efni sem Þing­valla­nefnd var gert að sinna ættu ekki heima hjá fram­kvæmda­vald­inu. Sér­stak­lega vegna þess að ef ein­hver álita­mál kæmu upp og um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd (USN) þyrfti að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu gagn­vart þeim mál­um. Það myndi þýða að bæði formaður og vara­formaður þing­valla­nefnd­ar þyrftu að fara úr sæt­um sín­um sem nefnd­ar­menn USN og setj­ast í yfirheyrslusætin fyr­ir fram­an nefnd­ina. Ekki nóg með það þá þyrftu Karl Gauti Hjalta­son, Hanna Katrín Friðriks­son og Lín­eik Anna Sæv­ars­dótt­ir einnig að gera slíkt hið sama. Þeir sem sætu eft­ir í USN til að spyrja nefnd­ar­menn Þing­valla­nefnd­ar spurn­inga væru Bergþór Ólason, Jón Gunn­ars­son, Guðjón S. Brjáns­son, Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé og ég, sem áheyrn­ar­full­trúi.“

Þarna kristallast að þingmenn verða að setja þingmennina, ekki bara í fyrsta sæti í störfum, heldur í öllum sínum störfum.

Björn Leví: „Fimm nefnd­ar­menn USN (meiri­hlut­inn) yrðu gest­ir og fimm, ásamt áheyrn­ar­full­trúa, væru eft­ir í eft­ir­lits­hlut­verki. Vænt­an­lega kæmu vara­menn inn í USN, en það er vand­séð hvernig nokk­ur ætl­ar að spyrja gagn­rýn­inna og nauðsyn­legra spurn­inga. Nema ég auðvitað, það er eng­inn Pírati í Þing­valla­nefnd. Eng­in spurn­ing um tengsl sem þvæl­ast þar fyr­ir.“

Eina skýringin á setu þingmanna í Þingvallanefnd er hégómi þingmanna.

Þetta er nánast að verða að fyndið. En er samt alvarlegt. Þingið veikir sjálft sig. Með því einu að skipa fólk úr eigin röðum til að geta  skreytt sig með nefndarsetunni.

Björn Leví: „Þessi litla nefnd er samt bara dæmi um stærra vanda­mál sem Alþingi glím­ir við í eft­ir­lits­hlut­verki sínu því það er hefð að meiri­hluti þings­ins slái sam­an í að eigna sér fram­kvæmda­valdið, og sé því allt á einni hendi; fram­kvæmda­valdið, lög­gjaf­ar­valdið, fjár­veit­ing­ar­valdið og eft­ir­lits­hlut­verkið með fram­kvæmda­vald­inu. Það hef­ur nefni­lega sýnt sig aft­ur og aft­ur að hlut­verk meiri­hlut­ans á þingi er ekki aðhald og eft­ir­lit með fram­kvæmda­vald­inu held­ur að þvæl­ast fyr­ir því eft­ir­liti, gera lítið úr mis­tök­um eða af­glöp­um ráðherra, bera fyr­ir sig stjórn­ar­sam­starf um­fram lög­brot eða að halda vernd­ar­hendi yfir hags­muna­tengsl­um. Jafn skýrt dæmi um brot á skipt­ingu rík­is­valds­ins og sést í hinni litlu Þing­valla­nefnd er til í miklu stærri út­gáfu í gervöllu þing­inu. Við erum bara orðin svo vön því fyr­ir­komu­lagi að við höld­um að það sé bara eðli­legt.“

Að lokum setti Björn Leví fram ímynda dæmi:

„Hvað ætli yrði sagt ef Lands­rétt­ar­dóm­ari myndi allt í einu standa upp í miðju rétt­ar­haldi og bera vitni fyr­ir hönd ann­ars málsaðilans? Eða ef lögmaður sama málsaðila myndi hringja í dóm­ara að loknu þing­haldi og hjálpa til við að skrifa dómsorðið? Slíkt er auðvitað fás­inna og rugl. Af hverju fær slíkt rugl að viðgang­ast á Alþingi? Það er ekk­ert eðli­legt við að Alþingi starfi sem varn­ar­stofn­un fram­kvæmda­valds­ins sem sér ekk­ert illt, heyr­ir ekk­ert illt og seg­ir ekk­ert illt.“

Fáum og jafnvel engum kemur til hugar að fólk sem skipar Þingvallanefnd sé hæfara til þess en almennt gerist. Að því metnu að núverandi nefndarmenn sætu ekki samtímis á þingi. Eina skýringin á setu þingmanna í Þingvallanefnd er hégómi þingmanna. Ódýrara verður það ekki.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: