- Advertisement -

“…þá stefnir í blóðug verkfallsátök á nýju ári“

Vilhjálmur Birgisson:

Það er ekki hægt að segja að sveitarfélögin hafi svarað þessu ákalli verkalýðshreyfingarinnar og nægir að nefna að Hafnafjarðabær hækkaði 1. nóvember skólamáltíðir um 33% og um 19% hækkun á fæðisgjaldi í leikskólum.

Vinnumarkaður Við erum öll á sama „báti“ er öskrað á okkur í verkalýðshreyfingunni og þið verðið að „sýna“ skynsemi í komandi kjarasamningum ef við eigum að ná niður verðbólgunni! Enda er verðbólgan launafólki um að „kenna“ er öskrað úr öllum áttum.

Við höfum sagt ef við erum öll á sama „báti“ þá verða stjórnvöld, sveitarfélög, verslun og þjónusta, tryggingarfélög, orkufyrirtæki og í raun allir að halda kyrfilega aftur af verðlagshækkunum og hækka gjaldskrár um ekki meira en 2,5% á næsta ári.

Við höfum sagt að við erum til í að gera langtímasamninga í anda lífskjarasamninga ef allir taka þátt og ráðist verður hér í kerfisbreytingar á fjármálakerfinu ásamt öðrum atriðum er lúta að hagsmunum launafólks, neytenda og heimilanna.

Sveitarfélög eru nú þegar byrjuð að ráðast af fullum þunga á barnafjölskyldur.

Það er ekki hægt að segja að sveitarfélögin hafi svarað þessu ákalli verkalýðshreyfingarinnar og nægir að nefna að Hafnafjarðabær hækkaði 1. nóvember skólamáltíðir um 33% og um 19% hækkun á fæðisgjaldi í leikskólum.

Ég hef fengið vitneskju um 20% hækkun á skólamáltíðum í grunnskólum hér á Akranesi. Sveitarfélög eru nú þegar byrjuð að ráðast af fullum þunga á barnafjölskyldur sem hafa þurft að taka á sig kostnaðarhækkanir á liðnum misserum úr öllum áttum. Enda liggur fyrir að neytendur, launafólk og heimili eru að kikna undan stórauknum álögum á öllum sviðum.

Það er ljóst ef það á að níðast enn frekar á heimilum þessa lands í formi kostnaðarhækkana þá stefnir í blóðug verkfallsátök á nýju ári. Til að forða frá því verður að verða alger stefnubreyting hjá sveitafélögunum, stjórnvöldum, verslun og þjónustu og taka verður á okurvöxtum fjármálakerfisins.

Eitt er víst að ég er alls ekki bjartsýnn á framhaldið því mér finnst skilningsleysi áðurnefndra aðila á alvarleikanum á stöðu launafólks, neytenda og heimila ekki vera upp á marga fiska eins og kostnaðarhækkanir hjá Hafnafjarðabæ sýna og staðfesta!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: