- Advertisement -

Þriðjungur býr utan höfuðborgarsvæðisins

Samfélag Af þeim 327.050 sem búa á Íslandi, eiga 209.680 heima á höfuðborgarsvæðinu. Á Íslandi búa

164.130 karlar og 162.920 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 23.080.

Á öðrum ársfjórðungi 2014 fæddust 1.050 börn, en 480 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 130 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 10 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 130 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á öðrum ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 680 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (160), Noregi (160) og Svíþjóð (110), samtals 430 manns af 660. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 270 til landsins af alls 800 erlendum innflytjendum. Spánn kom næst, en þaðan fluttust 45 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2014  
 

Alls

Karlar

Konur

Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs

327.050

164.130

162.920

Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs

326.340

163.660

162.680

Breyting

700

460

240

Fæddir

1.050

540

510

Dánir

480

230

250

Aðfluttir umfram brottflutta

130

160

-25

Aðfluttir

1.460

840

630

Brottfluttir

1.330

680

650

Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.
Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: