- Advertisement -

Þrír drullusokkar

Maryam Abu Daqqa, ljósmyndari hjá Independent Arabia, var á meðal að minnsta kosti 20 sem létust í árás Ísraelshers á Nassar-sjúkrahúsið í Khan Younis.

Illir menn eru þeir; Vladimir Pútín, Benjamin Netanyahu og Donald Trump. Byrjum á Trump.

Las þetta á mbl.is: „Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ir árás­ir Rússa á Úkraínu gera sig mjög reiðan.

Í sam­tali við fjöl­miðla fyr­ir utan Hvíta húsið fyrr í dag sagðist Trump hafa átt sam­töl við Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta síðan fundi hans lauk með Volodimír Selenskí og öðrum Evr­ópu­leiðtog­um fyr­ir viku síðan.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Hvert sam­tal sem ég á við hann er gott sam­tal,“ sagði Trump við fjöl­miðla.

„En svo, því miður, er sprengju varpað á Kænug­arð eða ann­ars staðar, og það ger­ir mig mjög reiðan.““

Á sama tíma tekur Trump þátt í þjóðarmorðinu á Gaza. Hann gæti stöðvað það strax ef hann vildi. Eða þyrði. Í gær drápu Ísraelar meðal annars blaðamenn. Morð Ísraelsmanna á blaðamönnum eru skammarleg þöggun á fréttamennsku um Gaza.

Hryllingur þessara mann vellur fram hvern einasta, einasta dag.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: