Magnús R. Einarsson þýddi og endursagði:
„20. janúar síðastliðinn hélt forsætisráðherra Kanada Mark Carney ræðu í Davos í Sviss en þar fer fram árlegur fundur Alþjóðaefnahagsráðsins og er árleg samkoma leiðtoga úr stjórnmálum, viðskiptalífi og menningu heimsins til að ræða helstu heimsmál.
Þar sagði hann í stuttri samantekt að þar sem engar miðveldisþjóðir (middle powers), eins og Þjóðverjar, Japanir, Bretar, Kanadamenn og fleiri, gætu staðið gegn stórveldunum Bandarríkjunum eða Kína upp á eigin spýtur þá ættu þær hugað að samvinnu.
Ræðan vakti gríðarlega athygli um allan heim. Carney talaði af fádæma hugrekki og hann vakti aðdáun fyrir þá hugsýn (vision) að sameina þjóðir til að bregðast við vaxandi yfirgangi stórveldanna, einkanlega Bandaríkjanna.
Það er ekki að efa þessi ræða hefur verið stúderuð og til umræðu hjá hugveitum, fræðimönnum og pólitíkusum um allan heim í allt sumar. Nú er komið viðbragð við ræðunni frá ESB sem býður Kanada aukaaðild að sambandinu.
Það var aðeins upphafið. Eftir að yfirlýsingin kom á miðvikudaginn var hafa Ástralir, Nýsjálendingar og Bretar allir lýst áhuga að skoða þessa hugmynd. Það er heldur ekki að efa að miðveldi eins og Japan, Suður Kórea og Brasilía eru núna að skoða hugmyndina af áhuga því hún er djörf.
Eins og búast mátti við þá brást Bandaríkjaforseti við hugmyndinni af offorsi og með hótunum. Hann er nú ekki vitlausari en svo að hann sér að náin samvinna miðveldanna í þrem heimsálfum gæti ekki boðað neitt gott fyrir efnahag Bandaríkjanna sem eru skuldugust allra þjóða heims og stefna í gjaldþrot ef ekki fer að horfa til betri vegar á næstunni.“