- Advertisement -

Ólýsanlegar þjáningar barna

Með því að fyrirskipa fjölskyldum að flytja er Ísrael ekki að tryggja að þær lifi af, heldur einungis að gefa þeim kost á að deyja á annan hátt, annars staðar.

Jason Lee.

Erlent: „Ég varði síðustu viku í Gaza þar sem ég varð vitni að hræðilegri stöðu sem hefur orðið enn hörmulegri,“ skrifaði blaðamaðurinn Jason Lee.

„Ég hitti fjölskyldu sem var á vergangi og leitaði í örvæntingu að mjólk handa yngsta barninu. Móðir þess lést þegar rústir féllu á hana. Þar lá hún dáin og grafin undir rústum. Ég hitti börn sem stóðu í röð ásamt hundruðum annarra eftir að komast á eina salernið sem þau höfðu aðgang að. Ég hitti hjálparstarfsmenn sem unnu hetjulega að því að veita aðstoð og koma fólki í skjól. Sjálfir voru þeir í þessu sama skjóli.

Þessar sögur af ólýsanlegum þjáningum sem eru því miður tíð í Gaza, þar sem 1,8 milljónir manna – næstum 80 prósent íbúanna – eru nú heimilislausar og reyna að leita hælis hvar sem þeir geta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sjö daga hlé á bardögum veitti létti á fólkinu, gerði þeim kleift að leita að mat, ástvinum og taka sér hlé frá linnulausum sprengjuárásum. En þetta var skammvinnt.

Við mannúðarsinnar unnum óþreytandi að því að koma með fleiri vörubíla, koma nauðsynlegum vistum til þeirra hundruða þúsunda manna sem enn þurfa á aðstoð og dreifa þeim til barna og fjölskyldna þeirra sem leita skjóls þar sem það er unnt. Samt sem áður er þetta enganveginn nóg til að mæta þörfum þeirra 2,3 milljóna manna sem þurfa á lífsnauðsynlegri aðstoð að halda.

Þegar fréttirnar bárust snemma föstudagsmorguns um að vopnahléð væri á enda, breyttust vonir um endanlegt vopnahlé í örvæntingu. Aftur fluttu sjúkrabílar slasaða á sjúkrahús og fjölskyldur sem þegar voru á vergangi var skipað að flytja á ný.

Að flytja á svæði sem geta ekki hýst þá. Þar sem aðstaðan er ekki fullnægjandi, til að mynda vantar þar vatn og hreinlætisaðstöðu og alla aðra grunnþjónustu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: