„Í dauðans alvöru eru friðartillögurnar frá Netanyahú og Trump steinddautt plagg. Þeir vita sem er, að Palestínumenn geta ekki samþykkt tillögurnar. Á vef RÚV er að finna nýtt viðtal við Magnús Þorkel Bernharðsson sérfræðing í málefnum Miðausturlanda. Hann segir friðaráætlun Trumps ekki duga til að tryggja varanlegan frið:
„Þeir eru að setja allskonar skilmála á Palestínumenn sem þeir vita að Palestínumenn myndi aldrei sætta sig við. Þannig eru þeir líka að vonast til að Palestínumenn hafni þessu vegna þess að Ísraelsmönnum hefur það verið í orðræðunni að Palestínumenn hafi alltaf hafnað friði en Ísraelsmenn vilji frið. Þarna eru þeir að stilla þeim upp við vegg, svo Palestínumenn hafni þessu. Þess vegna virðist þetta vera uppskrift að áframhaldandi stríði, að kaupa tíma fyrir Netanyahú og hans stjórn,“ sagði Magnús Þorkell á ruv.is.