Verið er að loka fjölda ríkisstofnana í Bandaríkjunum. Donald Trump náði ekki að semja um aukabráðabirgðafjárlög. Því er ekki annað að gera en skella í lás. Þvers og kruss um Bandaríkin.
Það munu hafa verið kröfur Demókrataflokksins um fjármögnun heilbrigðiskerfisins sem urðu til þess að ekki náðist samkomulag.
Þetta hefur áhrif á mikinn fjölda ríkisstarfsmanna sem og allan almenning.
Trump kennir demókrötum um að svona fór og hann hótar að refsa Demókrataflokknum og fólkinu sem kaus flokkinn.
„Við munum segja upp fjölda manns og og áhrifin verða mikil á þetta fólk. Þau eru demókratar og þau verða demókratar,” sagði Trump í Hvíta húsinu og sagði svo að margt gott gæti komið út úr lokunum ríkisstofnana. Hægt væri að losa sig við ýmislegt sem ríkisstjórnin væri ósátt við, sem tengdist demókrötum.