- Advertisement -

Metfjöldi ferðamanna á Spáni

ff7.is: Spænsk ferðaþjónusta sló met í fyrra með 97 milljónum erlendra gesta að sögn ferðamálaráðherra landsins.

Fyrstu tölur benda til 3,5 prósenta aukningar frá fyrra ári, þegar 94 milljónir útlendinga heimsóttu Spán, að því er Jordi Hereu greindi frá á blaðamannafundi.

Ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein á Spáni og tekjur jukust um 6,8 prósent. Erlendum gestum fylgdu 135 milljarðar evra í tekjur, að sögn ráðherrans.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: