- Advertisement -

Útsendari Trump ætlar að gera „Grænland hluta af Bandaríkjunum“

ff7.is/umræðan: Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur skipað Jeff Landry ríkisstjóra Louisiana sem sérstakan sendifulltrúa á Grænlandi. Að sögn Trumps á hann að gæta hagsmuna Bandaríkjanna á Grænlandi, sem forsetinn hefur ítrekað kallað mikilvægt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna.

Jeff Landry þakkar fyrir þetta nýja verkefni í færslu á X þar sem hann segir það mikinn heiður að fá að vinna að því að gera „Grænland hluta af Bandaríkjunum.“

Frá þessu greinir Politiken og í frétt miðilsins segir að orðalag Landry veki athygli í ljósi fyrri yfirlýsinga Trumps um hugsanleg yfirráð Bandaríkjanna yfir Grænlandi.

Þau ummæli Bandaríkjaforseta hafa valdið óróa bæði á Grænlandi og í Danmörku og spennu í samskiptum landanna við Bandaríkin. Utanríkisráðherra grænlensku landstjórnarinnar hefur áður varað við því að yfirlýsingar Trump skapi óöryggi þótt Bandaríkin séu áfram talin náinn bandamaður.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: