Stríð:
Í leiðara Moggans frá í gær var fjallað um grimma aðgerð rússneska hersins í Úkraínu:
„Evrópusambandið lagði í gær nýjar efnahagsþvinganir á rússneskar stofnanir og embættismenn sem hafa tekið þátt í nauðungarflutningum þúsunda barna frá Úkraínu til Rússlands eftir innrásina í Úkraínu. Tölur eru nokkuð á reiki um nákvæman fjölda þessara barna, en úkraínsk stjórnvöld segja þau um tuttugu þúsund og talið er að 80% þeirra sé enn haldið í Rússlandi eða á svæðum sem rússneski herinn ræður yfir í Úkraínu.
Hver sem fjöldinn nákvæmlega er þá er augljóst að um alvarlegan glæp er að ræða af hálfu Rússa. Sum barnanna voru tekin með valdi, önnur með blekkingum þar sem sagt var að verið væri að koma þeim í skjól og ástandið yrði aðeins tímabundið. Nú er komið í ljós að ekkert var að marka það og Rússar hafa þess í stað tekið til við að innræta börnunum brenglaðar söguskýringar sínar um Úkraínu og unnið að því að gera þau að Rússum.
Allt er þetta eins ógeðfellt og hugsast getur og hefur, auk þvingana Evrópusambandsins og fordæminga annarra, orðið til þess að Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt ályktanir um þessi óhæfuverk og meðal annars krafist þess að Rússar skili börnunum. Það hefur engan árangur borið og nú segir Evrópusambandið að sum barnanna hafi endað í Norður-Kóreu þar sem unnið sé að heilaþvotti þeirra. Óhætt er að segja að þar kunni menn til verka í þeim efnum.
Ákvörðun Evrópusambandsins er fagnaðarefni, en hætt er við að Rússland geri lítið með hana og haldi uppteknum hætti. Þar virðast stjórnvöld til í hvað sem er, nema ef til vill að sýna vott af manngæsku.“