- Advertisement -

Umræða um listir og róttækar kennsluaðferðir

Mannlíf Í tengslum við sýninguna Aftur í sandkassann, sem verður opnuð í fyrramálið, verður efnt til umræðu í Hafnarhúsinu laugardaginn 16. janúar kl. 15.  Sýningarstjórinn Jaroslav Anděl auk listamannanna Michael Joaquin Grey og Priscilu Fernades segja frá sýningunni og verkum sínum og tala um tengsl listar og róttækra kennsluaðferða.

Í verkum sínum skoðar Michael Joaquin Grey óvæntar tengingar á milli upphaflegra hugmynda um leikskólann frá 19. öld og kenninga í samtímanum t.d. um leikfangahönnun. Priscila Fernandes skoðar hins vegar katalónska anarkistann Francesc Ferrer, sem var umbótasinni í menntamálum á fyrri hluta 20. aldar.

Á sýningunni Aftur í sandkassann eru verk listamanna sem spyrja spurninga um eðli og hlutverk menntunar og líta jafnframt á sköpun sem lykilþátt í samfélagi okkar tíma. Á sýningunni er vísað er til hugmynda umbótasinna og hugsjónamanna á sviði menntamála og mótsagnakenndar hliðar menntunar eru dregnar fram.

Umræðan fer fram í verki á  sýningunni eftir  Priscilu Fernandes sem nefnist, The Book of Aesthetic Education of the Modern School.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Viðburðurinn hefst kl. 15 og fer fram á ensku. Aðgangseyrir á sýninguna er kr. 1.500, ókeypis er fyrir menningarkortshafa.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: