- Advertisement -

Viðreisn á flótta frá sjálfri sér

Framganga borgarfulltrúar Viðreisnar hefur víða vakið athygli, innan ráðhússins og utan. Viðreisn virtist vera að landa fínum samningum þegar ávkeðið var að flokkurinn styrkti fyrri meirihluta til áframhaldandi stjórnar í Reykjavík.

Viðreisn hefur gengið í takt við meirihlutann í einu og öllu og hvergi sýnt sjálfstæðan vilja. Í Mogga dagsins er frétt þar sem segir frá flótta Viðreisnar frá sjálfu sér. Þar segir:

„Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur undrast að Viðreisn hafi ekki stutt eitt kosningaloforða sinna á fundi borgarstjórnar í gær. Sjálfstæðismenn lögðu til að sama upphæð skattpeninga fylgdi hverju barni í skólakerfinu óháð rekstrarformi grunnskólans. Þetta þýddi að ekki mætti  innheimta skólagjöld.“

 „Það kom mér í opna skjöldu þegar þau treystu sér ekki til að samþykkja tillöguna,“ sagði Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, um afstöðu Viðreisnar sem hafi talað fyrir valfrelsi í skólastarfi og að nýta einkaframtakið við menntun.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hildur segir, við Moggann, tillöguna hafa átt að tryggja börnum jöfn tækifæri til að sækja ólíka grunnskóla og leikskóla borgarinnar. Í dag þurfi sjálfstæðir leikskólar og grunnskólar að innheimta hærri gjöld en þeir borgarreknu. „Þannig verður efnahagur foreldra að ákvarðandi forsendu við skólaval. Þetta skapar misskiptingu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: