- Advertisement -

Vilja sekta slóðana

Ríkisendurskoðun bendir á að dæmi séu um að stofnanir eða sjóðir hafi ekki skilað ársreikningum í áraraðir. Jafnvel í meira en tíu ár.

Samfélag Alls höfðu 364 sjóðir eða stofnanir, nú um áramótin, ekki skilað Ríkisendurskoðun ársreikningi fyrir rekstrarárið 2016. Þar af eru 22 sjóðir eða stofnanir sem ekki hafa skilað ársreikningi í áratug eða lengur og 96 sem ekki hafa skilað ársreikningi í fimm til tíu ár.

Á vef Ríkisendurskoðunar segir: „Ekki er vitað um síðustu skil 56 sjóða eða stofnana en margar þeirra hafa aldrei skilað ársreikningi.  Þrátt fyrir árvissar ítrekanir Ríkisendurskoðunar við forsvarsmenn staðfestra sjóða og sjálfseignarstofnana undanfarin ár hafa skil ekki batnað. Hafa verður í huga í þessu sambandi að stjórnvöld hafa skv. gildandi lögum ekki sambærilegar heimildir og t.d. ársreikningaskrá RSK til þess að beita einhverskonar refsiviðurlögum, svo sem dags- eða vikusektum, vegna síðabúinna skila eða annarra vanrækslu.  Af þessum sökum hyggst stofnunin fara þess á leit við dómsmálaráðherra að hann beiti sér fyrir því að lögfest verði efnislega sambærilegt sektarákvæði og mælt er fyrir um í 42. gr. laga nr. 33/1999 um sjálfseignarstofnanir, sem stunda atvinnu.“

Elstur allra sjóða var stofnaður árið 1662. Hér er listi yfir alla sjóðina þar sem Ríkisendurskoðun annast endurskoðun.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: