- Advertisement -

Willum Þór vill vera áfram

Willum Þór Þórsson skrifar:

Ég býð mig fram til áframhaldandi forystu á lista Framsóknar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar 2021.

Á þessu kjörtímabili sem senn er að ljúka hef ég sinnt ábyrgðarstörfum m.a. sem formaður fjárlaganefndar ásamt því að vera starfandi þingflokksformaður. Auk þess hef ég setið í efnahags- og viðskiptanefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og forsætisnefnd. Kjörtímabilið hefur verið viðburðaríkt og óvenju krefjandi, held ég að sé óhætt að segja.

Næstu misseri verða mikilvæg í viðspyrnunni og miklar áskoranir m.a. á sviði efnahagsmála, ríkisfjármála og atvinnumála. Stór mál sem þarf að takast á við af ábyrgð, festu og skynsemi.

Ég trúi því að reynsla mín af þeim ábyrgðarstörfum sem mér hefur verið trúað fyrir komi að góðum notum við þær áskoranir sem framundan eru. Ég óska því eftir að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum og bið áfram um stuðning ykkar í 1. sæti lista Framsóknar í Suðvesturkjördæmi.

Með góðri kveðju, Willum Þór.

Árangur áfram, ekkert stopp!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: