- Advertisement -

XD: Tvö framboð úr utanríkisráðuneyti

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Diljá Mist Einarsdóttir, sem er Guðlaugi Þór til aðstoðar í ráðuneytinu, sækist eftir þriðja sæti í prófkjörinu.

„Ég tel mikilvægast að við horfum á stóru myndina – forræðishyggja og vaxandi afskipti ríkisins af venjulegu fólki er mikið áhyggjuefni. Í frjálsu samfélagi er hagsmunum okkar best borgið, þar nýtur hvert og eitt okkar sín best – fjölbreytileiki mannlífsins er okkar helsti styrkleiki. Við höfum staðið okkur best þegar við treystum á okkur sjálf. Nú eigum við að horfa óhrædd og björtum og augum til framtíðar,” segir Diljá Mist í tilkynningu. 

Þar segir einnig: „Diljá hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún er varaborgarfulltrúi flokksins í Reykjavík og hefur hún átt sæti í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar. Hún tók sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir þingkosningarnar árið 2009. Þá var Diljá annar vara­for­maður Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna 2007-2009 og vara­for­maður Heimdallar 2009-2010. Diljá sat enn fremur í stjórn Varð­ar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík 2016-17, svo dæmi séu tekin.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: