- Advertisement -

Loftkastalaþingmenn

Arnar Þór Jónsson skrifaði:

Arnar Þór Jónsson og Dagbjört Hákonardóttir.

„Nú blasir við „rof á milli þings og þjóðar“, því flestum Íslendingum er orðið morgunljóst að ESB aðild mun opna fyrir erlend yfirráð yfir fiskveiðiauðlind Íslands. Þessi blákaldi veruleiki er óþægilegur fyrir þingmenn sem byggt hafa loftkastala í eigin huga í kringum þá ímyndun að allt verði betra – og öll vandamál verði sjálfkrafa leyst – ef Ísland verður ESB ríki. Dagbjört Hákonardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd, er ein af þessum loftkastala-þingmönnum. Þetta get ég – og aðrir gestir nefndarinnar vegna þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29.8. nk. – vottað út frá spurningum hennar sem tengjast ESB. Hvað gerir loftkastalafólk þegar raunveruleikanum verður ekki lengur afneitað? Því svaraði Dagbjört í viðtalið á Bylgjunni nú í gær / fyrradag, þegar hún sagðist „ekki vera viss um“ hvort nauðsynlegt sé fyrir Ísland að fá varanlega undanþágu frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Frammi fyrir þessu er tímabært að horfast í augu við ískaldan veruleikann: Við Íslendingar höfum ekki lengur efni á að láta loftkastalafólk sjá um að „hugsa“ fyrir okkur, því þeim er ekki treystandi: Þau vilja allt aðra niðurstöðu en meiriihluti Íslendinga, sem hefur alls engan áhuga á að ESB fái yfirráð yfir Íslandi og auðlindum þess.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

[Til að hlusta á upptökuna, sjá hlekk í fyrstu athugasemd á fb-síðu AÞJ / á bloggi]


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: