- Advertisement -

Samfylkingin pólitískt jaðarsamfélag vina

Í ljósi þessa hef ég sjálfur ekki lengur erindi innan flokksins.

„Eftirfarandi bréf sendi ég á Samfylkinguna í morgun. Ég birti það hér til upplýsingar. Ég ætla ekki að hafa frekari orð um málið,“ skrifar Pétur G. Markan.

„Heil og sæl.

Þessi póstur er búinn að vera lengi að myndast hausnum á mér – hef skrifað hann margoft. Ákveðið að bíða aðeins og sjá.

Allt er breytingum háð.

Ég hef verið þátttakandi í Samfylkingunni frá upphafi fundarins í Borgarleikhúsinu hvar Samfylking – breiðfylking jafnaðarmanna var stofnuð. Fór með mömmu og varð heillaður. Fann mér stað meðal ólíkra einstaklinga með sömu hugsjón – jöfnuð á breidd samfélagsins.

Hef á þeim tíma gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn: formaður ungra jafnaðarmanna í RVK og hef setið sem varaþingmaður Samfylkingarinnar á Alþingi svo eitthvað sé týnt til sem stendur meira upp úr en annað.

Nú hefur erindi Samfylkingarinnar breyst frá því að vera breiðfylking yfir í pólitískt jaðarsamfélag vina. Allt er breytingum háð. Í ljósi þessa hef ég sjálfur ekki lengur erindi innan flokksins, vilja til fylgja honum eða félagslega uppörvun.

Það hefur fyrst og fremst birst í því að ég hef ekki viljað gefa kost á mér til trúnaðarstarfa eða verið í framboðs hugleiðingum. Lesið sameiginlegt spjall flokksins á netinu og velt fyrir mér hvort það sé ekki ljós að finna annars staðar.

Það eru því ekki pólitísk frama-vonbrigði eða listablús sem eru til grundvallar þessari ákvörðun.

Ég verð eftir sem áður jafnaðarmaður í huga og hjarta – þar sem breiðfylking ólíkra sjónarmiða skipar stefnu landsins. Annað verður ekki nema pólitískt heimapartý. Leyst upp þegar næsti stjórnarsáttmáli verður undirritaður.

Um leið og ég þakka fyrir gönguna, samstarfið og allar góðar stundir og óska flokknum gleði og hamingju segi ég mig úr Samfylkingunni með þessum pósti.“

Með vinsemd, Pétur G. Markan.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: