
Verði Nei-ið samþykkt, munu viðeigandi forystumenn eiga eftir að semja við þetta skrímsli ESB.
Umræðan: Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifar:
„Oft má á aðferðum sem beitt er og vinnubrögðum .sem við eru höfð sjá hvers konar alvara er í ferðinni. Hvað sé í húfi. Hver er ástæðan fyrir þessari nöktu heift , niður níðandi og ómerkilegu rangfærslum og uppspuna sem aðstandendur nei-sinsins viðhafða ummæli og „greining“ á ESB er fyrir neðan allar hellur og alvöru stjórnmálamönnum ekki sæmandi. Verði Nei-ið samþykkt, munu viðeigandi forystumenn eftir að semja við þetta skrímsli ESB. Það er þó ekki verra en svo að við00 höfum gert við það samning um aðgang að gjöfulasta stórmarkaði heims. Enginn neyddi okkur til þess. ESB átti ekki frumkvæði að því. Nú hafa þeir sem misst hafa vitið í hatri til sambandsins látið þá skoðun í ljós að réttasr væri að segja EES samningnum upp! Morgunblaðið rær með fullum þunga með.
Verði Nei-ið samþykkt, munu viðeigandi forystumenn eiga eftir að semja við þetta skrímsli ESB. Það er þó ekki verra en svo að við höfum gert við það samning um aðgang að gjöfulasta stórmarkaði heims. Enginn neyddi okkur til þess. ESB átti ekki frumkvæði að því. Nú hafa þeir sem misst hafa vitið í hatri til sambandsins látið þá skoðun í ljós að réttasr væri að segja EES samningnum upp! Morgunblaðið rær með fullum þunga með.
Við höfum áður lent í köldu fangi sambærilegra valdastéttar.
Það sem hangir á spýtunni er framtíð Íslands. Eigum við að halda áfram að vera evrópsk lýðræðis þjóð sem verður í traustu sambandi við frænd- og vinaþjóðir og deila með þeim framtíðinni. Hafa grunnsamþykktir ESB að leiðarljósi eða lenda í klóm nýkrýndra ofur auðmanna landsins. Við höfum áður lent í köldu fangi sambærilegra valdastéttar. Þessir menn óttast um tangarhald sitt á auðlindum okkar, sem þeir vilja sitja einir að. Þá er ég ekki að tala um fiskimiðin. Heita- og kalda vatnið verður verðmætasta auðlindin. Þar vilja þeir sitja einir að. Þess vegna má ekki hefja viðræður, því þær gæti orðið okkur of hagstæðar. Ef ágúst atkvæðagreiðslan verður neikvæð, þá vita þeir að það mun líða langur tími þar til hún verður endurtekin ef nokkru sinni. Þeir leggjan allt í sölurnar. Eigið mannorð líka.“