- Advertisement -

Vinstrið vill opinn fund

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi skrifar:

„Borgarstjórn kemur saman þriðjudaginn 8. september. Vinstrið setur á dagskrá tillögu um opinn fund vegna nýlegra skipulagsbreytinga.

Við leggjum til að borgarstjórn samþykki að halda opinn fund í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem farið er yfir þær skipulags- og stjórnkerfisbreytingar sem nýverið voru samþykktar. Á þessum fundi verði fólki einnig gefinn sá lýðræðislegi vettvangur að tala um breytingarnar og hvernig þær snerta það og æskilegt er að nokkrir hagsmunaaðilar hafi stutta framsögu um breytingarnar og hvernig þeir sjái framtíðina fyrir sér. Fyrirkomulag og skipulag fundarins verður í höndum þess starfsfólks sem áður hefur skipulagt samskonar borgarafundi og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara er falið að halda utan um þennan lýðræðislega borgarafund.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: