
Arnar Þór Jónsson skrifaði:
„Þetta hlýtur að verða fréttamynd ársins: Fjármálaráðherra er fagnað svo innilega af samráðherrum sínum fyrir blaðamannafund um „hallalaus fjárlög“ að halda mætti að fjármálaráðherrann hefði unnið heimsmeistaratitil. Frammi fyrir þessari sjón getur verið gagnlegt að minna sig á að þetta er ríkisstjórn sem fyrir 10 dögum beið sáran ósigur með sitt stærsta áhugamál, þ.e. að framselja hlutverk ríkisstjórnarinnar til erlendra ráðamanna.
Fyrir slíka ríkisstjórn er gott að geta „fagnað“ sigri án þess að nokkur sigur hafi unnist.
Myndin kristallar allt sem er rangt við pólitík nútímans:
Haldin er leikræn sigurhátíð áður en árangri er náð og búnar til fréttamyndir og fyrirsagnir sem eiga að skapa sigurinn, því í pólitík er hægt að snúa öllu á hvolf og fagnaðarlæti notuð til að búa til „sigur“, ekki öfugt. „Sigurinn“ hér felst því ekki í raunverulegum árangri heldur fyrirsögn sem sett er fram til að stýra almennri umfjöllun í trausti þess að fæstir lesi smáa letrið.
„Fögnuður“ ríkisstjórnarinnar byggir á bókhaldsbrellu þar sem tekjuhliðin er hækkuð með sköttum og gjöldum á almenning, en útgjaldahliðin fegruð með ýmsu móti án nauðsynlegs aðhalds eða aukinnar skilvirkni hjá ríkinu. Af því að fæstir hafa tíma til að lesa mörg hundruð blaðsíðna fjárlagafrumvarp reyna ráðherrar að nota fölsk fagnaðarlæti í stað raunverulegs sigurs. Í íþróttum er árangur mælanlegur. Í pólitík er það sá sem stjórnar frásögninni sem stýrir því hvað telst sigur.