- Advertisement -

„Valkostur við hvað í Þýskalandi?“

Sigurður Már Jónsson skrifaði:

„Valkostur við hvað í Þýskalandi? Þýska þjóðin ber með sér þunga sagnfræðilega byrði og hún kemur alltaf til umræðu þegar breytingar verða á stjórnmálaástandi landsins. Lengi vel vildi þýska þjóðin lítið af stjórnmálum vita og setti þau í hljóðlátan farveg sem í raun þýddi að litlar breytingar yrðu þó að ólíkar fylkingar væru við völd. Pólarnir í þýskum stjórnmálum hafa þannig lengst af verið Kristilegir demókratar (CDU) og Jafnaðarmenn (SPD) sem staðsettu sig í klassískum anda á hægri-vinstri ás stjórnmálanna. En nú er kominn refur í hænsnabúið þar sem stjórnmálaflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) vann mjög afgerandi sigur í sambandslandinu Saxlandi-Anhalt nú um helgina. Hvað felst í þessu, sjá grein hér.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: