Úr leiðara Moggans:
Sem sagt á
allan almenning.
„Almenningur tapar þó ekki aðeins í gegnum eignarhaldið heldur einnig sem viðskiptavinir, eins og kemur raunar fram í greinargerð með bandormi ríkisstjórnarinnar vegna fjárlagafrumvarpsins. Þar segir að skatturinn geti hækkað vaxtamun með því að hækka útlánsvexti en lækka innlánsvexti, sem hefur neikvæð áhrif bæði á lántakendur og þá sem eiga innlán í bönkum. Sem sagt á allan almenning.
Bankaskatturinn hefur þó ekki aðeins þessu beinu áhrif, hann getur líka haft óbein áhrif á markaðinn með því að skekkja samkeppnisstöðu einkareknu bankanna í samkeppninni við ríkisbankann. Ríkið getur stillt af hvað það tekur út úr Landsbankanum og gæti þannig lækkað arðgreiðslur á móti þessari skattahækkun á meðan skattahækkunin leggst af fullum þunga á hina bankana og eigendur þeirra. Aukin skattheimta á bankana getur enn fremur haft neikvæð áhrif á fjármögnunarkjör bankanna, enda veikja hærri skattar bankana, sem og sú óvissa sem fylgir því að starfa í umhverfi þar sem sífelld hætta er á að skattar verði hækkaðir og eignir þar með rýrðar. Hætt er við að þetta eigi enn fremur við um einkabankana en ríkisbankann og skekkir þannig samkeppnisstöðuna enn frekar.
Sumum stjórnmálamönnum þykir þægilegt að leggja skatt á fjármálafyrirtæki því að þeir telja að þessi fyrirtæki njóti lítils velvilja hjá kjósendum. Þegar útlánsvextirnir haldast hærri en ástæða væri til og innlánsvextirnir skerðast, auk þess sem lífeyrissjóðurinn rýrnar með minnkandi verðmæti bankanna, er þó hætt við að almenningur horfi á bankaskattinn eins og hann er; sem skatt á allan almenning.“
Bara til gamans:
Úr laginu Austurstræti eftir Ladda:
Þar standa bankarnir í röðum Lands-Búnaðar-Útvegs
Og fyrir utan stendur horaður almúginn
En fyrir innan sitja feitir peninganna verðir
Og passa að vondi kallinn komi ekki og taki þá.