- Advertisement -

Alvarlegur skriður á sundurgliðnun Bretaveldis

Óháð því er kominn alvarlegur skriður á sundurgliðnun Bretaveldis og vísbendingar um að dagar Stóra-Bretlands, United Kingdom, verði taldir áður en mörg ár líða.

Kristinn Hrafnsson skrifaði:

„Í gær kröfðust leiðtogar þriggja hluta Bretlands þjóðaratkvæðagreiðslu um aðskilnað frá ríkjasambandinu. Þetta voru John Swinney, heimastjórnarráðherra Skotlands (first minister) og leiðtogi Skoska þjóðarflokksins SNP, Rhun ap Iorwerth, leiðtogi flokksins Plaid Cymru sem fer með völd í Wales og Michelle O’Neill, varaforseti Sinn Féin flokksins en hún veitir heimastjórn Norður-Írlands forstöðu.

Það sem blandast þessari kröfu er mikil óánægja með úrsögn úr Evrópusambandinu með Brexit fyrir 10 árum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í Skotlandi var þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði árið 2014 og var þá meirihlutinn andvígur viðskilnaði við Lundúni (55/45). Tveimur árum síðar var kosið um Brexit og í Skotlandi var styrkur meirihluti gegn útgöngu úr ESB þó að innan Bretaveldis væri naumur meirihluti fyrir öndverðu sjónarmiði. Í Skotlandi er því talinn nú mögulegur meirihluti fyrir viðskilnað við England og inngöngu í ESB.

Í Norður-Írlandi var meirihluti gegn Brexit og gríðarleg óánægja með að landamæri væru nú komin upp á milli Norður-Írlands og Írlands þó að allt væri gert til að halda eins óbreyttu ástandi og hægt væri efir að Norður-Írland yfirgaf innri markað ESB með Brexit. Á sama tíma hefur írskri þjóðerniskennd vaxið fiskur um hrygg sem meðal annars endurspeglast í sigri Sinn Fein í norðurhlutanum fyrir fjórum árum en flokkurinn er einingarflokkur alls Írlands. Fyrir tveimur árum varð leiðtogi Sinn Fein heimastjórnarráðherra þar í fyrsta sinn. Ef norðurhlutinn slítur sig frá Bretlandi og Írska eyjan sameinast verða norðanmenn sjálfkrafa hluti af Evrópusambandinu.

Í Wales hefur staðan verið flóknari en er að breytast. Enn er aukinn meirihluti gegn viðskilnaði við Bretland, líklegast 60-70%, en þegar kemur að Brexit hefur orðið mikil hugarfarsbreyting frá því Walesverjar kusu með naumum meirihluta að yfirgefa ESB fyrir áratug. Nú sýna kannanir að yfir 60% íbúa telji að Brexit hafi verið mistök.

En krafa leiðtoganna þriggja, sem sendu frá sér sér yfirlýsingu í gær eftir sögulegan fund í Cardiff í Wales var skýr, krafa um að fá að kjósa um viðskilnað og sjálfstæði. Ef slíkt yrði ofaná myndi heldur betur kvarnast úr veldi Karls III Bretakonungs og hann yrði einungis Englandskonungur. Skotar yrðu sjálfstæðir og myndu sækja um aðild að ESB og Norður-Írar myndu sameinast bræðrum og systrum í suðri og eitt óskipt ríki yrði á eyjunni grænu – og hún öll innan ESB. Óvíst er hvernig færi í Wales enda tryggð við ríkjasamnbandið þar enn mikil. Óháð því er kominn alvarlegur skriður á sundurgliðnun Bretaveldis og vísbendingar um að dagar Stóra-Bretlands, United Kingdom, verði taldir áður en mörg ár líða.

Það sem ætti ef til vill að vekja sérstaka umhugsun er þessi vaxandi krafa um fullveldi og sjálfstæði á grunni þjóðerniskenndar og efnahagslegs hagsmunamats, á sama tíma og augljós vilji er að tengjast efnhagsblokk og pólitísku bandalagi í ESB.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: