- Advertisement -

Núverandi ríkisstjórn telur mikilvægara að skerða fullveldi Íslands en að slökkva þá elda sem hér loga

Stjórnmál:

Arnar Þór Jónsson skrifaði:

„Þótt lítið (ekkert?) hafi farið fyrir því í fréttum, þá gerði utanríkisráðherra enn einn óvinafagnaðinn í gær, þegar hún útbýtti á Alþingi valdaframsalsfrumvarpinu um bókun 35. Það þýðir samkvæmt þingsköpum að hún getur að tveimur nóttum liðnum flutt framsöguræðu um málið með þeim fyrirsjáanlegu afleiðingum að önnur þingstörf verða sett í uppnám meðan bókunarmálið er þar til meðferðar.

Ríkisstjórnin setti öll önnur verkefni til hliðar í vor og sumar til að sinna aðaláhugamáli sínu, þ.e. að gera Ísland að aðildarríki ESB. Þegar það mistókst var ákveðið að keyra strax af stað með valdaframsalsfrumvarpið. Af þessu verður ekki dregin önnur ályktun en sú að

Þú gætir haft áhuga á þessum

Frammi fyrir þessu er rétt að minna alþingismenn á að þeir hafa allir lýst því fyrir, skriflega og að viðlögðum drengskap sínum og heiðri, að halda stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og gegna starfsskyldum sínum af árvekni og samviskusemi. Þetta þýðir að þingmönnum leyfist ekki að samþykkja frumvarp sem leiða myndi af sér framsal á dómsvaldi og skerðingu á löggjafarvaldi Alþingis.

Í stað þess að reyna að veikja Alþingi væri ráðherrum í ríkisstjórn rétt að styrkja þingið og nota fullveldisréttinn til að taka á uppsöfnuðum vanda hér innanlands. Ríkisstjórn sem setur þjóðaratkvæði um ESB og frumvarp um valdaframsal í forgang er í raun að viðurkenna að hún treysti sér ekki til þess að rækja frumhlutverk sitt gagnvart Íslendingum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: